Sóknarfæri í offituvanda gæludýra Svavar Hávarðsson skrifar 30. nóvember 2013 07:00
Siglfirska líftæknifyrirtækinu Primex hefur tekist að komast inn á Rússlandsmarkað og það stefnir að landvinningum í Asíu. Kítósan, verðmætt efni sem fyrirtækið vinnur úr rækjuskel, er í dag nýtt í vörulínur heimsþekktra fyrirtækja eins og Herbalife, NuSkin, Now, L‘oréal og Wella. Fyrirtækið Primex var stofnað árið 1999 til að nýta rækjuskel en það ár var bannað að henda rækjuskel í sjóinn. Núna veltir fyrirtækið 500 milljónum króna á ári og milljarði hefur verið varið til uppbyggingar verksmiðju, í rannsóknir, þróun og markaðsstarf.Skortur og verðmæti Sigríður Vigfúsdóttir, markaðsstjóri Primex, segir að í dag standi hráefnisskortur starfsemi fyrirtækisins helst fyrir þrifum. Á sama tíma er skel enn hent í sjóinn, þó Primex fái mest af tilfallandi rækjuskel hérlendis til úrvinnslu. Viðbrögð við hráefnisskorti eru að afla þess erlendis, og er horft til Grænlands og Kanada. „Hráefnisskorturinn varð þess valdandi að við leituðum uppi verðmætari markaði fyrir okkar vöru, eins og fyrir lyf þar sem virðisaukinn er meiri. Í skelinni eru auk þess fleiri efni en kítósan sem eru áhugaverð,“ segir Sigríður og nefnir andoxunargjafann astaxantín, steinefni og prótín.Konfekt án samviskubits En vörur Primex koma víðar við en halda mætti við fyrstu sýn. Íslenskir neytendur eru margir með LipoSan í skápnum, trefjaefni sem dregur í sig fitu og nýtist til að bæta meltinguna. ChitoClear er sárasprey sem upphaflega var markaðssett fyrir dýr, en nýtist okkur mannfólkinu engu síður. Sigríður segir að í þróun sé ný útfærsla á LipoSan. „Um er að ræða örhúðað LipoSan sem eykur notkunarmöguleikana verulega, eins og t.d. í heilsudrykki, heilsuskot og snakkstangir. Svo er einn möguleiki sem við höfum verið að kynna fyrir kúnnum okkar en það er að setja örhúðað LipoSan í konfekt. Þennan möguleika kynntum við á stærstu heilsuvörusýningu í Las Vegas í síðasta mánuði og sló þetta alveg í gegn. Hver vill ekki geta fengið sér konfektmola án samviskubits yfir fituinnihaldinu?“Herbalife og L‘oréal Viðskiptavini Primex má finna um allan heim. Bandaríkjamarkaður tekur rúm 40% og Evrópa litlu minna. Asíumarkaður er vaxandi og 20% af framleiðslu Primex fer þangað. Vörudreifing fer í gegnum vöruhús fyrirtækisins í Norfolk í Bandaríkjunum og Rotterdam í Hollandi. Sigríður segir að Rússland sé nýjasti markaðurinn og lofi góðu. Næst verður lögð áhersla á Asíumarkað og byggt á góðum árangri í Japan og Suður-Kóreu. Meðal fyrirtækja sem kaupa vöru Primex til að nota í vörulínur sínar eru alþjóðlegu stórfyrirtækin Herbalife, NuSkin, Now, L‘oréal og Wella, svo einhver séu nefnd. Notagildi efnisins sannast kannski þegar á það er minnt að bandaríski herinn hefur notað kítósanplástra frá Primex, en þeir hafa reynst notadrjúgir við að stöðva blæðingu hjá hermönnum á vígvellinum.grafík/GarðarFeit gæludýr Sigríður segir að markaður fyrir fæðubótarefni gefi takmarkalitla möguleika. „Það er ekki bundið við okkur mennina. Offituvandamál gæludýra í heiminum og þá ekki síst bandarískra gæludýra felur í sér möguleika fyrir okkur því dekur við dýrin eru að verða vandamál. Það er því að verða til markaður fyrir megrunarlyf fyrir dýr þar sem við getum sótt fram. Undanfarin tvö ár höfum við verið að vinna heimavinnuna okkar til að koma sterk inn á þennan markað. Eitt af stærstu gæludýrafyrirtækjum er tilbúið með sína neytendavöru fyrir hunda og reiknar með að setja hana á markað í byrjun árs. Þetta sama fyrirtæki ætlar einnig að setja á markað ChitoClear-sáraspreyið okkar. Samvinnuverkefni með þessu bandaríska fyrirtæki hefur nú tekið um fjögur ár, þannig að þetta er langhlaup í þróunar- og markaðsferli.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira