Unnið að úrbótum á matvælaöryggi á Íslandi Hrund Þórsdóttir skrifar 7. ágúst 2013 18:30
Verkefnið Örugg matvæli gerir Matvælastofnun og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna kleift að framfylgja reglugerðum um matvælaöryggi og neytendavernd, sem þegar hafa verið innleiddar í gegnum EES samninginn. Stuttur viðbragðstími er lykilatriði þegar matvælaöryggi er ógnað og vegna landfræðilegrar einangrunar Íslands er nauðsynlegt að rannsókna- og öryggisþjónusta sé til staðar. Helga Gunnlaugsdóttir, fagstjóri hjá Matís segir tilgang verkefnisins að bæta hana svo hægt verði að mæla óæskileg efni í matvælum sem ekki hafi verið hægt að gera að fullnustu hingað til og þjálfa starfsmenn í þessum mælingum. „Sömuleiðis gengur verkefnið út á að starfsfólk innan opinbera eftirlitsgeirans fái þjálfun til að geta sinnt skyldum sínum,“ segir Helga. Verkefnið er knýjandi til að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar í matvælalöggjöf, en í dag er til dæmis ekki hægt að skima fyrir öllum efnum sem ætlast er til að mæld séu í grænmeti og ávöxtum. „Í dag getum við skimað fyrir 63 efnum en eftir að við fáum þann tækjabúnað sem nauðsynlegur er og þá þjálfun sem nauðsynleg er, getum við skimað fyrir 300 efnum, sem er það sem er reiknað með að við getum gert samkvæmt reglugerð,“ segir Helga. Annað dæmi er að í dag er ekki hægt að mæla þörungaeitur í skelfiski eins og ætlast er til, en það verður mögulegt eftir að verkefninu lýkur á næsta ári. Nýlega létust 22 börn á Indlandi vegna skordýraeiturs sem barst í mat þeirra. Strangar reglur gilda um efnaleifar í matvælum hérlendis og mörg efni sem áður voru notuð eru bönnuð, meðal annars það sem olli dauða barnanna. Helga segir ólíklegt að slíkt geti gerst hér. „Engu að síður er mikilvægt að fylgjast með og vita hvernig staðan er á matvælunum sem eru að koma til landsins,“ segir hún.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira