"Þetta kom mér mjög mikið á óvart" Hrund Þórsdóttir skrifar 7. ágúst 2013 18:45
Tvær milljónir gesta hafa heimsótt Hörpuna frá því að húsið var opnað fyrir rúmum tveimur árum og náðist áfanginn þegar Sjöfn Friðriksdóttir mætti þangað seinni partinn í dag. Forstjóri Hörpunnar segir aðsókn að húsinu langt umfram væntingar. Sjöfn var hálfbrugðið í dag þegar Halldór Guðmundsson, forstjóri og Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpunnar, stöðvuðu hana við miðasöluna til að afhenda henni viðurkenningu og gjafakort á tónleika. „Þetta kom mér mjög mikið á óvart, rosalega mikið. Ég átti alls ekk von á þessu náttúrulega. Ég var bara að sækja miðana mína á draggkeppnina í kvöld,“ segir Sjöfn. Hún fór líka á dragkeppnina í Hörpunni á síðasta ári. „Svo kem ég oft hingað með vinkonum til að slappa af og spjalla.“ Talið hefur verið inn í Hörpuna síðan hún var opnuð um miðjan maí 2011 og hefur nánast milljón manna, eða rúmlega þrefaldur íbúafjöldi landsins, heimsótt hana á ári. Aðsókn erlendra ferðamanna hefur stóraukist og í sumar hafa fjögur til fimm þúsund ferðamenn komið í Hörpuna á hverjum degi. „Ég held að aðsókn að þessu húsi hafi verið langt umfram væntingar,“ segir Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpunnar. Áætla má að um fjórðungur gesta sæki tónleika í húsinu og fjórðungur mæti á fundi, ráðstefnur eða í veislur. Um helmingur kemur því til að skoða húsið, taka myndir, sýna sig og sjá aðra. „Að ímynda sér þegar húsið var opnað að íslenska þjóðin væri búin að koma hingað sem svarar sjö sinnum rétt um það leyti sem tvö ár væru liðin, það hefði enginn gert ráð fyrir því,“ segir Halldór.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira