Svipir Bakkavararbræðra í sögu Óskars Magnússonar Jakob Bjarnar skrifar 13. desember 2013 08:50 Að mati þeirra sem til þekkja fá Bakkavararbræður það óþvegið hjá Óskari Magnússyni.
Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins, hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem heitir: „Látið síga piltar“ og þykjast þeir sem til þekkja sjá í sögunni þá Bakkavararbræður, Lýð og Ágúst Guðmundssyni í líki þeirra Skelpöddusvila; sem dregnir eru sundur og saman í nöpru háði sem menningarsnauðir plebbar. Þegar blaðamaður Vísis setti sig í samband við Óskar fletti hann upp í eftirmála bókarinnar og hóf að lesa: „Þessi saga er skáldsaga. Allar persónur bókarinnar eru hugarburður höfundar...“ Þegar varnaglar eru slegnir af svo miklum móð er full ástæða til að halda vöku sinni. „Það hafa tveir mikilvirkir krítíkerar haft fyrir því að taka það sérstaklega fram að þetta sé ekki lykilróman. Sem þýddi að höfundurinn varð að fletta upp í bókmenntafræðunum til að átta sig á hvað það hugtak þýddi. Þannig að... en, svarið er sem sagt það að sagan er skáldsaga. Eins og í öllum, eða mörgum skáldsögum, finna menn líkingar við sjálfa sig, höfundinn eða hina og þessa menn en menn verða að gefa skáldskapnum það flug sem hann á skilið,“ segir Óskar og vandar vel svör sín. Þeir eru nefnilega til sem vilja meina að hér sé kominn ekta lykilróman úr Fljótshlíðinni, þar sem Óskar býr að mestu. Gosið í Eyjafjallajökli er miðlægt, með tilheyrandi öskufalli yfir sveitina, svo og Hrunið, en bændum höfðu bankar boðið gull og græna skóga fyrir Hrun ef þeir vildu byggja og stækka. Merkilegust er lýsingin á Bakkavararbræður... nei, Skelpöddusvilum, en eins og kunnugt er byggðu Bakkavararbræður glæsilegt sumarhús í hlíðinni fyrir Hrun. Og eiga bankann sem prangar lánunum inn á bændurna. Þeim er lýst af fullkomnu háði og konum þeirra einnig mjög svívirðilega, öll þessi affera er eftirtektarverð, sem slík og einnig vegna stöðu og tengsla Óskar Magnússonar í viðskiptalífinu. Án þess að farið sé nánar í þá sauma hér á þessum vettvangi. Óskar er einfaldlega spurður út í þá íþrótt Íslendinga sem er sú að vilja finna mann og annan í sögum? „Þessi saga hefði ekki verið skrifuð eins og hún er ef ég ætti ekki heima í Fljótshlíðinni. Hvað það nær langt verður svo hver og einn að gera upp við sig. En hún er skáldskapur,“ segir höfundurinn. Og þeir eru ekki gæfulegir þeir Skelpöddusvilar. Tími er peningar er eina máltækið sem annar þeirra kann og fer rétt með. Hinn les Basil fursta í einkaflugvélinni af því að hann er bókmenntamaður. Óhætt er að segja að þetta séu menningarsnauðir plebbar og hljóta þeir örlög grimm – eins og oft er í sögum.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira