Óskastígur í hjarta bæjarins Símon Birgisson skrifar 7. desember 2013 12:00 Rakel Steinarsdóttir myndlistarkona Vildi lífga upp á planið fyrir utan hjá sér og ákvað að breyta því í gallerí. Fréttablaðið/Valli
Við myndlistarmenn erum alltaf að tjá okkur. Við viljum láta rödd okkar heyrast,“ segir Rakel Steinarsdóttir myndlistarkona og íbúi á Frakkastígnum. Það er að frumkvæði sem þetta nýja og óhefðbundna sýningarrými hefur orðið til: Óskastígur. „Ég bý hérna á Frakkastígnum, hér er stórt plan og oft hálfgert öngþveiti um helgar þegar bílar keyra hér fram og til baka. Planið er hluti af minni lóð og mér datt í hug að það væri hægt að glæða það lífi. Þannig kviknaði hugmyndin. Ég hafði samband við fjölda listamanna auk þess sem nágranni minn Tora Victoria listamaður varð mér að liði og allir tóku vel í þessa hugmynd,“ segir Rakel. Þeir myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni heita: Áslaug Thorlacius, Baldur Geir Bragason, Björk Guðnadóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Eygló Harðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Gunnar M. Pétursson, Hulda Hákon, Ingimar Ólafsson Waage, Jón Óskar, Magnea Ásmundsdóttir, Olga Bergmann, Ósk Vilhjálmsdóttir, Rakel Steinarsdóttir, Tora Victoria, Þóroddur Bjarnason og ljóðskáldið Linda Vilhjálmsdóttir. Ádeila á neyslusamfélagið „Þetta er þriggja vikna sýning og nú eru allir í óða önn að setja upp verkin. Fólk má búast við fjölbreyttri sýningu – það er verið að mála á veggina, hengja upp myndir, búa til innsetningar, hljóðverk og vídeóverk. Ætli það mætti ekki lýsa þessu sem skemmtilegri samsuðu af samtímamyndlist.“ En það felst líka pólitískur boðskapur í sýningunni. Rakel segir þetta svæði einkennast af andstæðum. Þarna séu aðliggjandi verslunargötur þar sem markaðshyggjan og jólabrjálæðið blasi við. Og svo séu þarna barir sem tilheyri annarskonar og sorglegri stemningu. „Auðvitað er þetta að ákveðnu leiti ádeila á samfélagið eins og það blasir við manni,“ segir Rakel. „Sýningin er pólitísk.“ Opnunin á Óskastígnum fer fram á laugardaginn klukkan 16:00 þar sem listamennirnir afhjúpa sín verk og er borgarbúum boðið að skoða sig um og njóta verkanna undir berum himni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira