Ragnar Þór kallar til lögmenn Jakob Bjarnar skrifar 18. desember 2013 09:53 Ragnar Þór, kennarinn sem sagði starfi sínu lausu í kjölfar naflausrar ábendingar, segir málinu hvergi nærri lokið. MYND/AF VEF REYKJAVÍKURBORGAR
Ragnar Þór Pétursson kennari, boðar í nýjum pistli að hann muni fylgja málum sínum gagnvart Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur (SFR) eftir: „Ég hef hingað til keyrt málið á almennri skynsemi og réttlætiskennd. Þegar hlutir taka myndbreytingum fyrir augunum á manni og hugtök hætta skyndilega að merkja það sama og áður – þá er það skýrt merki um að kominn sé tími á lögfræðingana. Ég mun því kalla þá fram á sjónarsviðið og leyfa þeim að gera tilraunir til að blása burt þokunni.“ Eins og fram hefur komið í fréttum sagði Ragnar Þór starfi sínu sem kennari við Norðlingaskóla lausu eftir að SFS barst nafnlaus ábending um að hann hefði gerst sekur um brot gegn börnum. Ragnar segir SFS tvísaga í málinu og ekki gera greinarmun á hugtökunum „nafnleysi“ og „nafnleynd“ og sviðinu sé fyrirmunað að játa á sig mistök. Þá virðast orðin „almenn“ og „sértæk“ vefjast fyrir yfirstjórn skólamála. En einkum er það þessi eiginleiki sem er sá að geta ekki viðurkennt mistök sem Ragnar telur óbærilegan og skaðlegan: „Því það er eiginlega ótrúlegt hve langt menn nenna að ganga til að þurfa ekki að segja þessi örfáu orð: „Ég gerði mistök.“ Og þar sem hugrekkið til að gera mistök er eitt mikilvægasta hreyfiaflið í réttlátu kerfi kemur ekki alveg á óvart að í kerfi sem reynist svona einstaklega illa sé djúpt á viðurkenningu á slíku.“
Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira