Verðmunur á jólamatvörum mikill Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2013 12:01
Bónus var með lægsta verðið í 48 tilvikum af 89 í verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ. Krónan var ódýrust í 13. Samkaup-Úrval var með hæsta verðið í 45 tilvikum af 89 og Nóatún í 16. Flestar vörurnar voru fáanlegar í verslun Fjarðarkaupa eða 84 af 89 og Iceland átti 83. Úrvalið hjá Bónus var minnst, 63 vörur af 89 og í Nóatún voru þær 70. „Verðmerkingum var ábótavant hjá Víði Skeifunni, hjá Krónunni Granda og hjá Samkaupum–Úrvali Hafnarfirði.“ Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 89 matvörum, sem eru mikið keyptar fyrir jólahátíðina, í níu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri síðastliðinn mánudag.Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Holtagörðum, Krónunni Granda, Nettó Akureyri, Iceland, Víði Skeifunni, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Nóatúni Háaleitisbraut, Samkaupum - Úrvali Hafnarfirði og Hagkaupum Kringlunni. Hér á eftir koma niðurstöður könnunarinnar: Mestur verðmunur í könnuninni reyndist á Oskar andarkrafti sem var dýrastur á 534 kr. hjá Iceland en ódýrastur á 279 kr. hjá Bónus, verðmunurinn er 255 kr. eða 91%. Mikill verðmunur var einnig á Þykkvabæjar forsoðnum skyndikartöflum 2*500 gr. voru þær dýrastar á 619 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrastar á 459 kr. hjá Bónus, verðmunurinn 160 kr. eða 35%. Minnstur verðmunur reyndist vera á MS ¼ l af rjóma sem var dýrastur á 239 kr. hjá Víði en ódýrastur á 228 kr. hjá Nettó sem er 5% verðmunur. Það var einnig 5% verðmunur á Mjólku mangó/ástaraldinskyrtertu 600 gr. sem var dýrust á 1.154 kr. hjá Samkaupum–Úrvali en ódýrust á 1.098 kr. hjá Krónunni og Iceland. Benda má á að verðmunur á mjólkurvörum fór aldrei yfir 30% af þeim vörutegundum sem skoðaðar voru. Af öðrum vörum má t.d. nefna að mikill verðmunur var á 135 gr. konfektkassa frá Nóa sem var ódýrastur á 798 kr. hjá Bónus en dýrastur á 1.089 kr. hjá Nóatúni sem gerir 36% verðmun. Einnig var mikill verðmunur á Ora jólasíld 630 gr. sem var ódýrust á 748 kr./st. hjá Hagkaupum en dýrust á 998 kr./st. hjá Iceland sem er 33% verðmunur. KEA úrbeinað hangilæri var ódýrast á 3.195 kr./kg. hjá Bónus en dýrast á 3.898 kr./kg. hjá Samkaupum–Úrvali sem er 22% verðmunur.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira