Brotthvarfi Páls fagnað? Jakob Bjarnar skrifar 18. desember 2013 14:18 Víst er að Páll Magnússon er enginn augnakarl hjá starfsfólki Rásar 1, þó farinn sé. M.a. af vef RÚV.
Nokkrir starfsmenn Rásar 1 komu saman í gærkvöldi, til að fagna því sérstaklega að Páll Magnússon hafi sagt upp störfum. Helgi Seljan sjónvarpsmaður var einn þeirra sem tjáði sig um starfslok Páls Magnússonar, en það sló í brýnu milli þeirra tveggja fyrir nokkrum dögum. Helgi fagnaði þó ekki þessum málalokum: „Það hlakkar eflaust í mörgum við þessi tíðindi; enda hafa ótrúlegustu hópar náð saman í að gera Pál að einhvers lags holdgervingi þessara súrrealísku tíma. Það lið mun sjálfsagt djamma með Þórði í kvöld. Ég geri það ekki,“ sagði Helgi. Og, einhverjir urðu til að taka hann á orðinu. Um tíu manna hópur af Rás 1 kom saman á Microbar við Austurstræti í gær af þessu tilefni, þeirra á meðal Dagur Gunnarsson Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Hanna G. Sigurðardóttir og Jórunn Sigurðardóttir sem segir að þau komi oft saman; „við eru mörg góðir vinir og öll góðir kunningjar. Við sitjum hér í rjúkandi rúst og það má rekja til ákvarðana Páls. Hann hlýtur að bera ábyrgð á því.“ Spurð rekur Jórunni ekki minni til að það hafi verið skálað sérstaklega fyrir Páli. „Ég held ég fari örugglega rétt með. En, við lyftum oft glösum.“En, þið voruð sem sagt að fagna þessum starfslokum Páls? „Við förum oft út og þetta voru vissulega stór tíðindi. Sem voru tilkynnt í gær,“ segir Jórunn og bendir á að Páll hafi verið lengi og kannski sé þetta heppilegur tími. Gert sé ráð fyrir því í opinnberri stjórnsýslu að þetta séu tvö kjörtímabil, 2 x 4 eða 5 ár og að teknu tilliti til nýrra laga var það niðurstaða stjórnar að auglýsa stöðuna og hlýtur að teljast vafasamt að lofa einhverjum stöðunni fyrirfram. Samræmist varla góðum stjórnsýsluháttum.Stóra spurningin er hver tekur við? „Já, Auðvitað. Það vitum við náttúrlega ekki hver það verður. Og hver kemur til með að sækja um. Ég vildi óska þess að það verði manneskja sem færir sýn og sátt. Þetta er stór og flókin stofnun sem nú er í upplausn. Búið að segja upp 39 manns núna nýverið. Af öllum deildum nánast og hlutfallið mest á Rás 1 sem ekki er stór deild. Það hefur heyrst og sést í dagskrá en við sem eftir erum reynum að gera okkar besta til að verja þennan vettvang, sem sýnt hefur sig að fólki þykir mjög mikilvægur. Hafa komið margar fyrirspurning og athugsemdir við þetta.“Vonast menn til þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka? „Já, nú get ég bara svarað fyrir mig persónulega. Ég vildi óska þess. Og að málin yrðu hugsuð uppá nýtt.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira