Ragnar ætlar með málið alla leið 18. desember 2013 19:30
Kerfið sem á að vernda kennara gegn ósönnum ásökunum gerir það ekki og því mun ég fylgja þessu máli eftir alla leið, segir Ragnar Þór Pétursson, fyrrverandi kennari. Hann var var hreinsaður af nafnlausum sökum um kynferðisbrot gegn nemanda en hann er mjög ósáttur við þá meðferð sem málið fékk. Hann hefur fengið lögmenn til að komast að því hvar brotalömin liggur.Ragnar var borinn áðurnefndum sökum í upphafi árs. Skömmu síðar, eftir ítarlega rannsókn var hann hreinsaður af þessum ásökunum. Tilkynning frá skóla og frístundasviði sem rannsókn barnaverndar Reykjavíkur byggði á var almennt orðuð. Þar segir meðal annars. "Þar sem hvorki liggja fyrir upplýsingar um hvar eða hvenær atburðir þessi átti sér stað fylgir hér með upptalning á fyrri starfsstöðum Ragnars Þórs..."Í kjölfarið eru taldir upp allir þeir staðir sem Ragnar hefur unnið á undanfarin 17 ár. Orðalaginu var hinsvegar breytt, 10 mánuðum síðar í öðru bréfi sem Ragnar hefur undir höndum. Þar segir: Tilkynning var alvarlegs eðlis og varðaði mögulegt kynferðislegt brot gagnvart tilteknu barni við annan grunnskóla..." Ekki er hægt að skilja þetta breytta orðalag öðruvísi en að hér sé verið að réttlæta þá ítarlegu rannsókn sem í kjölfarið fór fram.Skóla-og frístundasvið þegir þunnu hljóði og vill ekki tjá sig um mál Ragnars"Miðað við það sem Barnaverndarstofu og sérfræðingar og aðrir sem hafa vit á segja mér, að það sé vægast sé mjög hæpið að hægt sé að grundvalla rannsókn á því (upphaflegu skýrslunni). Svona má víst ekkert standa að rannsóknum en það var samt sem áður gert," segir Ragnar. Ragnar hefur alls staðar komið að lokuðum dyrum þegar hann hefur leitað svara. "Ég er hættur að skilja þetta og frekar en að vera þvæla þetta eitthvað fram og til baka þá fara lögfræðingar mínir núna í það að komast að því hvað er satt og hvað ekki." Ragnar segir það óumdeilt að mannorð hans hafi beðið hnekki vegna þessara ásakana. "Það á að taka þessar ásakanir alvarlega en það á líka að taka alvarlega að svona ásakanir séu lagðar fram að ástæðulausu." Skóla og frístundasvið hefur ekki viljað tjá sig um málið þrátt fyrir að ítrekað hafi verið eftir því leitað. "Ég er ekkert hissa á því. Þeir hafa ekki góðan málstað að verja." Ragnar segir að barátta sín sé ekki bara persónuleg eðlis, kerfið allt verði að laga. "Þegar að kennari þarfnast verndar, þegar að kennari þarfnast þess að hlutirnir séu vandaðir, þá er brotalöm í því og það verður að laga. Þess vegna mun ég fylgja þessu alla leið," segir Ragnar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira