Desemberuppbótin bjargar hjá mér jólunum Hjörtur Hjartarson skrifar 18. desember 2013 19:30
Desemberuppbótin bjargar hjá mér jólunum, segir sextug kona sem hefur verið atvinnulaus í rúm tvö ár. Formaður Samfylkingarinna segir vont fjárlagafrumvarp orðið aðeins skárra. Um 240 milljónir króna fara í að greiða atvinnulausum desemberuppbót og verða þeir fjármunir sóttir í starfsendurhæfingarsjóð. Þá féll ríkisstjórnin frá þeirri hugmynd að rukka sjúklinga um legugjald á sjúkrahúsum sem átti að færa ríkissjóði 290 milljónir. Þegar var búið að falla frá hugmyndum um lækkun hæstu barnabóta sem hefði sparað ríkissjóði um 300 milljónir króna. Stjórnarandstaðan gagnrýndi allar þessar fyrirætlanir harðlega. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að fjárlagafrumvarpið væri enn meingallað þrátt fyrir að þessar breytingar. "Vont fjárlagafrumvarp með vitlausa forgangsröðun hefur aðeins skánað. Okkur hefur tekist að vinda ofan af ýmsm af þeim verstu þáttum sem birtust í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar."Jóhanna Kristín starfar sem sjálfboðaliði hjá FjölskylduhjálpÓskipt desemberuppbót til atvinnulausra nemur um 52 þúsund krónum en minnst um 13 þúsund krónum, allt eftir því hversu lengi viðkomandi hefur verið án atvinnu. Ljóst er að desemberuppbótin kemur til með að nýtast mörgum. Jóhanna Kristín Hauksdóttir starfar sem sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálpinni en hún hefur verið atvinnulaus í tvö og hálft ár. Hún segir að uppbótin bjargi hreinlega hjá sér jólunum. "Hún skiptir mig öllu máli. Nú get ég keypt jólagjafir handa börnunum og barnabörnunum sem ég hefði ekki getað öðruvísi." Jóhanna er sextug, vann áður við uppvask og þrif á hóteli í Reykjavík. Hún segir enga vinnu að fá. "Ég veit ekki hvað bíður mín. Maður verður bara að vona að einhver vilji mig í vinnuna en kennitalan er víst svolítið vandamál. Aldurinn er orðinn það mikill að það vill mann enginn," segir Jóhanna.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira