Við erum allir synir LIlja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 28. nóvember 2013 09:00 Ólafur er viðskiptafræðingur en Oddur er að klára BA-gráðu í mannfræði. Eftir áramót byrjar hann i meistaranámi í stjórnun og stefnumótun. Fréttablaðið/Valli „
Við erum báðir búnir að vinna lengi í tískubransanum og kynntumst þegar við vorum báðir að vinna hjá NTC. Við höfðum talað um það í einhvern tíma að stofna okkar eigið merki saman því við höfðum svipaðar hugmyndir um hvað vantaði á markaðinn og hvað væri skemmtilegt að gera. Við ákváðum því fyrr í ár að slá til og stofna Sons.is,“ segir Oddur Sturluson. Hann stofnaði vefverslunina Sons.is ásamt vini sínum Ólafi Fannari Heimissyni en vefurinn var opnuð í síðustu viku. „Við seljum okkar eigið merki sem fæst ekki neins staðar annars staðar. Framleiðandi í Bandaríkjunum hannar vörurnar fyrir okkur og við veljum útlitið í samráði við hann. Viðtökurnar hafa verið mjög jákvæðar og allir sem hafa fengið og séð vörurnar eru mjög ánægðir,“ bætir Oddur við. Nafnið á versluninni vísar til þess sem allir karlmenn eiga sameiginlegt. „Nafnið spratt upp úr samtali sem við áttum um handa hverjum merkið væri. Þá byrjuðum við að tala um þá staðreynd að allir karlmenn eiga fyrirmyndir sem þeir líta upp til og vilja líkjast. Við erum allir synir.“ Þeir Oddur og Ólafur eru mjög liðlegir þegar kemur að því að panta af síðunni og vilja allt fyrir viðskiptavini sína gera. „Við erum í því að redda málunum og bjóða upp á sem besta þjónustu. Viðskiptavinir panta vöru á vefsíðunni og fá hana senda daginn eftir. Ef einhver er hins vegar óviss um einhverja vöru eða vill fá hana fyrr er lítið mál að senda okkur skilaboð og við reddum því.“ Vinirnir hafa í hyggju að breikka vöruúrvalið en sem stendur selja þeir bindi, slaufur og vasaklúta. En er ekkert erfitt að vinna með vini sínum? „Satt best að segja er rosalega þægilegt að vinna með honum Óla. Við erum svo góðir vinir að það er lítið mál að ræða saman og komast að niðurstöðu ef við erum ósammála.“
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira