Sjónvarpsþátturinn Á fullu gazi hóf göngu sína á þriðjudagskvöldið á Stöð 2 en umsjónarmenn eru þau Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Finnur Thorlacius.
Sigríður Elva lenti í því óskemmtilega atviki daginn fyrir frumsýningu að Toyota Aygo-bifreið hennar bilaði en sjónvarpskonan knáa er mikil áhugamanneskja um bíla.