Fjöldafjármögnun lausn til bráðabirgða Svavar Hávarðsson skrifar 28. nóvember 2013 06:00 Ásbjörn Björgvinsson, formaður FÍ, telur að hugsa verði út fyrir rammann á meðan bestu varanlegu lausnar á gjaldtöku af ferðamönnum er leitað.
ferðaþjónusta Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands leggur til að höggvið verði á hnútinn um fyrirhugaða gjaldtöku af ferðamönnum með tímabundinni frjálsri fjöldafjármögnun (crowd funding). Hugmyndin snýst um að fá almenning, fyrirtæki og ferðamenn til að kaupa ígildi náttúrupassa og styðja með því samfélagsverkefni sem snýst um uppbyggingu ferðamannastaða um land allt. Ásbjörn Björgvinsson, formaður FÍ, segir hugmyndina vera leið út úr því öngstræti sem umræðan um náttúrupassa er komin í. „Meðan engin samstaða er um eina tiltekna leið þá væri þetta millileikur sem hægt væri að byrja á strax næsta vor. Við sjáum fyrir okkur að þetta yrði valkvætt og ekki þröngvað upp á einn eða neinn. En það er með þetta eins og allt annað sem þú ert að selja að ef það er gert nægilega fýsilegt, áhugavert, þá er hægt að ná árangri,“ segir Ásbjörn. Útfærsla verkefnisins yrði sú að kynningin færi fram í gegnum erlendar sem innlendar ferðaskrifstofur og aðra ferðaþjónustuaðila. Komið yrði fyrir lógói á heimasíðum þar sem hægt væri að leita upplýsinga og fróðleiks um til hvers átakið væri ætlað. „Þar velur hver og einn það sem honum hentar og fyrir vissa upphæð fengist lykill á leiki og fjölbreytta kosti til að vinna til verðlauna. Eins mætti hugsa sér að hægt væri að fá afslátt af þjónustu hjá ferðaþjónustunni, svona svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ásbjörn og bætir við að netið yrði vettvangur átaksins en einnig þyrfti að virkja stóra aðila eins og olíufélögin til að styðja verkefnið. Eins næði þetta til allra upplýsingamiðstöðva ferðamála út um land. „Við verðum að fá alla greinina til leiks og að taka þátt í kynningunni.“ Spurður um fordæmi segir Ásbjörn að ekki þurfi annað en að gúgla „crowd funding“ til að átta sig á að þetta fyrirkomulag er að ryðja sér til rúms um allan heim þar sem ótrúlegustu hlutir eru fjármagnaðir. Það sem FÍ telur ekki síst skipta máli er að átakið gæti, ef vel tekst til, nýst hér innanlands til að auka skilning og velvild almennings gagnvart því að vernda viðkvæma ferðamannastaði og gefa þjóðinni kost á að vera virkir þátttakendur í verkefni með jákvæðum formerkjum.Framkvæmdin undir stjórn fagfólks Ferðamálasamtökin sjá fyrir sér að söfnunarféð myndi renna í sjóð sem lyti sérstakri fagstjórn. Fjármunum yrði síðan deilt út til uppbyggingar, þróunar nýrra áfangastaða, til sveitarfélaga, landeigenda og annarra. Við þennan hluta verkefnisins er litið til tillögu Boston Consulting Group (BCG) sem kynnt var fyrir stuttu. Að mati BCG væri tekjunum af náttúrupassa best varið þannig að fjórðungi yrði útdeilt sem styrkjum en sama upphæð rynni í lágvaxta lánasjóð fyrir ferðaþjónustuna. Tíu prósent myndu fara til umsýslu en 40 prósent rynnu beint til ferðamannastaðanna í hlutfalli við aðsókn.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira