Bóndinn á Eiði óttast að sprengingar verði skammgóður vermir Svavar Hávarðsson skrifar 28. nóvember 2013 08:25 Mynd/Stefán
Þess verður freistað að hrekja síldartorfuna út úr Kolgrafafirði með djúpsprengjum. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar mun annast aðgerðina, en aðferðin er þekkt frá síldveiðum fyrri tíma. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tók í gær yfir samhæfingu aðgerða vegna síldarinnar í Kolgrafafirði. Eftir fund ráðuneyta og lykilstofnana í samhæfingarstöð almannavarna var ákveðið að ráðast í fælingaraðgerðir með djúpsprengjum í firðinum. Aðgerðirnar voru jafnframt kynntar á fundi með heimamönnum í Kolgrafafirði síðdegis í gær. Nokkrar vonir eru bundnar við að aðgerðin geti gert gæfumuninn, en smölun á síld með djúpsprengjum var notuð með góðum árangri við síldveiðar fyrr á árum þó þessi aðferð sé víðast hvar bönnuð í dag. Hafa ber þó hugfast að aðgerð sem þessi, að reka tugi þúsunda tonna af síld út úr firði, hefur aldrei verið reynd áður. Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði, segir það hafa komið flatt upp á heimilisfólk þegar fjöldi manns frá Landhelgisgæslu og lögreglu renndi í hlað í gær. Hugmyndin um smölun síldarinnar með sprengingum hafi ekki verið nefnd fyrr. „Við vorum fullvissuð um að við yrðum lítið vör við aðgerðina, en ég hafði áhyggjur af því að þeir rækju síldina hérna upp í vatnið við bæinn eða upp í fjöru. Þeir munu koma fyrir sprengju til að koma í veg fyrir það," segir Bjarni. Hann segist vongóður um árangur en óttast mjög að það verði skammgóður vermir; síldin muni koma strax aftur inn í fjörðinn enda virðist hún hafa fundið kjöraðstæður til vetrardvalar í firðinum. „Ég er enn þeirrar skoðunar að það verði að loka firðinum, og það sé það eina sem virkar til lengdar. En þetta er vel tilraunarinnar virði," segir Bjarni. Fylgst verður grannt með árangri aðgerðanna, magni síldar og súrefnisstöðu fjarðarins í því skyni að geta gripið til aðgerða á ný með skömmum fyrirvara þegar og ef þurfa þykir. Hafrannsóknastofnun verður við mælingar; bæði á magni síldar og hvort sprengingarnar beri tilætlaðan árangur. Ekki hefur verð hætt við fyrri áætlun um að reyna að reka síldina burt með hljóðum frá háhyrningum, heldur bíður hún sem hluti af vopnabúrinu í Kolgrafafirði ef þörf krefur.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira