Enski boltinn

Búið að gera mynd um 92-árganginn hjá Man. Utd

Sexmenningarnir með Sir Alex Ferguson.
Sexmenningarnir með Sir Alex Ferguson. vísir/getty
Búið er að gera heimildarmynd um leikmennina sem breyttu Man. Utd undir lok síðustu aldar. Myndin heitir "The Class of '92" og er um þá David Beckham, Ryan Giggs, Nicky Butt, Paul Scholes og Neville-bræðurna Gary og Phil.

Unglingalið Man. Utd árið 1992 fór mikinn og varð meistari. Tíu leikmenn í því liði áttu eftir að spila fyrir aðallið félagsins.

Það voru Beckham, Giggs, Butt og Gary Neville. Scholes og Phil Neville spiluðu ekki úrslitaleikinn 1992 en áttu síðar eftir að koma inn í liðið og verða stjörnur. Aðrir leikmenn úr liðinu frá 1992 eru menn eins og Robbie Savage og Keith Gillespie.

Myndin verður frumsýnd þann 2. desember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×