Stórslasaðist er hún féll á steikarhníf Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 8. desember 2013 20:30
Tíu ára gömul stúlka stórslaðaðist í gær þegar hún féll aftur fyrir sig, ofan á opna uppþvottavél, og lenti á oddhvössum steikarhníf. Sérfræðingur í barnaöryggi segir mikilvægt að huga jafnt að öryggi stálpaðra barna og smábarna. Áhöldunum í uppþvottavélinni sem stúlkan féll á var snúið þannig að oddhvassir hlutir snéru upp. Hnífurinn stakkst fjóra sentímetra inn í bak stúlkunnar, rétt neðan við vinstra herðablað, og var skurðurinn rúmir tveir sentímetrar á breidd. Við þetta féll vinstra lungað saman. Þá hlaut hún talsverða innvortis blæðingu. Stúlkan var flutt á bráðamóttöku Landspítalans. Nú rétt fyrir fréttir var hún færð af gjörgæsludeild en er enn undir nánu eftirliti. Sigrún Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, segir ýmsar hættur vera í eldhúsinu sem vert er að horfa á. „Það er í raun og veru sama á hvaða aldri viðkomandi er. Slysin geta alltaf gerst og hætturnar leynast víða, hvort sem um er að ræða ungabörn, stálpuð börn eða gamalmenni,“ segir hún. Sigrún telur að allt sem hægt sé að gera til að fyrirbyggja fallslys skili árangri, en það eru algengustu slys sem verða í heimahúsum. „Það er nefnilega svo merkilegt að slysin gera í raun og veru boð á undan sér. Oft þarf ekki nema einfaldar breytingar eða tilfæringar til að gera varúðarráðstafanir sem skipt geta sköpum hvað varðar slysahættu. Til dæmis að láta allt sem er beitt snúa niður á við í uppþvottavélinni, gaffla, hnífa og ostaskera.“
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira