Arnarpar reynir varp að nýju Svavar Hávarðsson skrifar 10. apríl 2013 12:00 Svo virðist sem skemmdarverk mannanna hafi ekki gert arnarparið afhuga varpi þetta árið. Mynd/Róbert A. Stefánsson
Skemmdarverk á arnarhreiðri í eyju á sunnanverðum Breiðafirði virðist ekki ætla að hindra arnarparið í að reyna varp aftur á sama stað. Það hefur nú byggt upp nýjan hreiðurlaup. Vegna skemmdarverksins verður hreiðrið vaktað úr landi og af sjó, segir í frétt Náttúrustofu Vesturlands. Fyrir tæpu ári varð uppvíst um skemmdarverk á arnarhreiðri í eyju á Breiðafirði þar sem ungt arnarpar hafði búið sig undir varp. Ekkert varð úr því vegna skemmda sem unnar voru. Á þeim tíma fóru fulltrúar Náttúrustofu Vesturlands og Fuglaverndar í eyjuna til að skoða verksummerki og var aðkoman ófögur. Sýnilegar skemmdir höfðu verið unnar á hreiðrinu með því að róta í því og kasta hluta hreiðurefnisins fram af klettum niður í fjöru. Skemmdirnar voru tvímælalaust af mannavöldum. Að þessu sinni munu ýmsir aðilar fylgjast vandlega með hreiðrinu úr landi og af sjó. Einnig er í skoðun að setja upp vöktunarmyndavél í nágrenni við hreiðrið. Örninn hefur verið strangfriðaður í tæpa öld og ekki þarf að taka fram að skemmdarverkið var skýlaust lögbrot.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira