Fjósalykt í eldhúsinu Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 11. nóvember 2013 16:00 Þórgunnur við borðið góða. Mynd/Auðunn
Þórgunnur Oddsdóttir, fréttamaður á RÚV, pússaði mörg lög af kúamykju utan af gömlu borði og gaf því nýtt líf í eldhúsinu. Mér fannst borðið alltaf svo fallegt þegar ég var lítil og hafði haft augastað á því lengi áður en ég hirti það,“ segir Þórgunnur Oddsdóttir, fréttamaður á RÚV, en hún og kærastinn, Birkir Baldvinsson, gerðu upp gamalt borð með renndum fótum sem staðið hafði úti í fjósi áratugum saman á Dagverðareyri, æskuheimili Þórgunnar. „Það man enginn hvaðan borðið kom eða af hverju það endaði úti í fjósi en þar hafði það staðið í örugglega þrjátíu ár og var notað til að leggja frá sér verkfæri. Mjólkurvörurnar sem komu með mjólkurbílnum voru alltaf lagðar á þetta borð og pöntunin fyrir mjólkurbílinn var líka alltaf skilin eftir á miða á borðinu. Þegar var verið að setja í glös, eins og það var kallað, eða taka sýni úr kúnum, var borðið dregið inn í fjósið og þá sat ég gjarnan við það og skrifaði niður hvað hver kýr mjólkaði,“ útskýrir Þórgunnur og segir talsverða vinnu hafa þurft til að laga borðið til. „Í fjósinu var það berskjaldað fyrir skít og við þurftum að pússa burt mykju og málningarleifar. Þegar við höfðum pússað allt borðið hugsaði ég með mér að kannski ætti viðurinn bara að fá að njóta sín. Hann hafði hins vegar drukkið í sig fjósalyktina áratugum saman og hún fór ekkert fyrr en við höfðum lakkað vel yfir borðið,“ segir Þórgunnur hlæjandi og er ekki frá því að það eimi enn eftir af fjósailmi af borðinu. „Það er bara sjarmerandi,“ segir hún og er hæstánægð með útkomuna. „Það var svo skondið að ég hafði alltaf ímyndað mér að borðið, með þessa renndu borðfætur, væri merkileg smíði. En það er hins vegar ekki sami viður í öllum borðfótunum og þeir eru heldur ekki allir eins. Rammanum hafði líka verið tjaslað saman úr mismunandi viði svo það er næstum eins og einhver hafi verið að æfa sig í að renna borðfætur og sett svo borðið saman eftir á, úr afgöngum. En það er bara betra að það sé ekki alveg fullkomið.“
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira