Engar reglur um hjólhýsabyggðir Valur Grettisson skrifar 20. ágúst 2013 10:30 Skógræktin hugar að nýjum reglum til að tryggja betur öryggi í hjólhýsabyggðum. Mynd/Stöð 2 „
Það eru engar reglugerðir til um þessi hýsi þegar búið er að taka þau af ökutækjaskrá,“ segir Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi, um öryggismál varðandi hjólhýsabyggðina í Þjórsárdal, en þar hafa þrír látist í tveimur slysum á innan við hálfu ári. Um helgina lést kona á áttræðisaldri í bruna í hjólhýsi sínu. Talið er að upptök eldsins hafi verið út frá gasbúnaði í ísskáp hjólhýsisins Hreinn segir að Skógrækt ríkisins, sem hefur umsjón með svæðinu, hyggist breyta reglum með þeim hætti að ekki verði lengur hægt að selja hjólhýsin á landinu þar sem eigendur leigja. Það sé meðal annars gert með það að markmiði að fólk þurfi að fjarlægja hjólhýsin sín eftir að það hættir að leigja landið. „Sum hjólhýsin hafa ekki verið skoðuð lengi, enda ekki á númerum, og jafnvel búið að rífa hjólin undan þeim. Svo eru þau ótryggð að auki,“ segir hann um ásigkomulag hjólhýsanna á svæðinu. Þá eru hjólhýsin sum hver ansi gömul. „Þau elstu eru um þrjátíu ára gömul,“ bætir hann við og segir það hluta af vandanum. Aðspurður segir hann að ekki standi til að loka fyrir hjólhýsabyggð á svæðinu. Eigendur hjólhýsa í Þjórsárdal hafa margir hverjir viljað leggja rafmagn að þeim. Spurður út í þetta svarar Hreinn að það hafi ekki verið farið út í slíkar aðgerðir af þeirri einföldu ástæðu að slíkt væri of kostnaðarsamt. Þar fyrir utan er Hreinn ekki viss um að slíkt yrði endilega til bóta út frá öryggissjónarmiðum, „Slysin verða einnig í kringum rafmagn,“ útskýrir hann. Spurður hvað Skógrækt ríkisins ætli að gera til þess að auka öryggi varðandi hjólhýsabyggðina svarar Hreinn: „Við þurfum að skoða okkar mál. Það er alveg á hreinu.“ Hreinn undirstrikar að slysið hafi haft mikil áhrif á starfsmenn Skógræktarinnar, „Okkur þykir þetta alveg hræðilegt. Við erum eyðilagðir yfir þessu.“ Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, segir að málið verði skoðað af sveitarstjórninni. Hann tekur undir með Hreini að hjólhýsabyggðin sé á gráu svæði varðandi reglugerðir. „Og við munum að sjálfsögðu skoða þetta mál vel,“ segir hann. Björgvin bætir við að orsök slyssins sé algjörlega ótengd ástandi hjólhýsisins og hrein tilviljun að þessi banaslys skuli gerast á sama stað með svo stuttu millibili. Yfir hundrað hjólhýsiUm 140 hjólhýsi eru í hjólhýsabyggðinni í Þjórsárdal. Þar hefur verið byggð í áratugi en elstu hjólhýsin eru um 30 ára gömul. Fyrirkomulag flestra hjólhýsanna uppfyllir ekki þau skilyrði sem byggingarreglugerð setur. Sökum jarðfestunnar og áfastra mannvirkja er varla hægt að tala um færanleg hjólhýsi. Nær væri að kalla þau ódýrar útfærslur á sumarbústöðum.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira