Markaðssetning og fjölmiðlaumfjöllun á bak við fjölgun ferðamanna Valur Grettisson skrifar 20. ágúst 2013 10:00 Ferðamönnum hefur fjölgað mikið yfir vetrarmánuðina. Fréttablaðið/Stefán „
Þessi aukning er mjög mikil,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, en samkvæmt nýrri skýrslu Ferðamálaráðs Evrópu jókst straumur ferðamanna til Íslands mest af öllum löndum í Evrópu. Skýrslan, sem er önnur ársfjórðungsskýrsla Ferðamálaráðsins, telur saman ferðamannastraum til fjölda landa í Evrópu frá mars til júní. Fjölgunin á Íslandi nam 30 prósentum. Í öðru sæti er svo Slóvakía með 20 prósent. Ferðamannastraumurinn eykst til flestra landa sem rannsóknin tekur til, en tvö lönd skera sig úr; straumurinn minnkar lítillega til Ítalíu, en allverulega til Kýpur. Erna segir þessa miklu fjölgun ferðamanna mega þakka markaðssetningu og fjölmiðlaumfjöllun. Hún telur að átakið „Ísland allt árið“ hafi skilað mestu. Meðal annars fjölgaði ferðamönnum um 45 prósent í mars síðastliðnum en átakið miðar að því að fá fleiri ferðamenn yfir vetrarmánuðina. „Svo hefur Ísland verið mikið í umræðunni, meðal annars vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og svo auðvitað út af kreppunni,“ segir Erna og bætir við að umræðan, þó vond sé, skili sér í aukinni umferð ferðamanna til landsins. Frá áramótum hefur ferðamönnum fjölgað um fimmtung samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira