Afhjúpa listaverk á Menningarnótt – Vinstri Grænir enn ósáttir við staðsetningu þess Haraldur Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2013 17:07 Torfi Hjartarson, varafulltrúi Vinstri Grænna í skipulagsráði Reykjavíkur, segir afstöðu flokksins til staðsetningar á listaverki Skúla Mogensen vera óbreytta.
Menningarnótt Reykjavíkur 2013 verður formlega sett laugardaginn 24. ágúst þegar Jón Gnarr borgarstjóri mun afhjúpa útilistaverk eftir bandaríska listamanninn Rafael Barrios. Listaverkið, sem nefnist Obtusa og stendur við Höfðatorg, á mótum Höfðatúns og Borgartúns, er í eigu Skúla Mogensen athafnamanns og eiganda WOW air. Skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti á sínum tíma að heimila Skúla að setja listaverkið upp. Þá greiddi Torfi Hjartarson, þáverandi fulltrúi Vinstri grænna í skipulagsráði og núverandi varafulltrúi, atkvæði gegn því að gerður yrði samningur við Skúla um uppsetninguna. Taldi hann „bæði óþarft og óheppilegt að koma listaverki í eigu einkaaðila fyrir á áberandi stað í almannarými utan við skrifstofur borgarinnar og móttökuhúsið Höfða". Torfi benti einnig á að Skúli ætti í „umsvifamiklum rekstri með áberandi merkingum skammt undan“, en með því var hann að vísa til þess að skrifstofur WOW air eru staðsettar rétt fyrir ofan Höfðatorg. Torfi sagði í samtali við Vísi í dag að afstaða Vinstri Grænna til staðsetningar listaverksins sé óbreytt. „Afstaða okkar í VG til staðsetningar á þessu tiltekna listaverki er óbreytt, það færi betur að hafa það úr tengslum við skrifstofur WOW og borgaryfirvalda. En þetta var niðurstaða skipulagsráðs á sínum tíma. Það breytir ekki því að Menningarnótt er hátíð borgarbúa borin uppi af almenningi en ekki einstökum fyrirtækjum eða peningamönnum og ég vænti þess að sá svipur verði á hátíðinni nú sem endranær.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira