Glímir enn við afleiðingar eineltis Hrund Þórsdóttir skrifar 20. ágúst 2013 19:45
Ung kona sem varð fyrir einelti í æsku segir það hafa djúpstæð áhrif á þolendur. Nú þegar nýtt skólaár er framundan, hvetur hún foreldra og forráðamenn til að setjast niður með börnum sínum, ræða málin og kenna þeim að standa með sjálfum sér og öðrum. Það kom vinum og ættingjum Huldu Proppé á óvart, þegar hún opnaði sig um einelti sem hún varð fyrir sem barn. Hún segist alls ekki hafa upplifað grófustu gerð eineltis en að neikvæðar aðstæður og hegðun annarra barna hafi orðið til þess að henni leið ekki vel. „Fólki var til dæmis skipt í lið úti á skólalóð í einhverjum hanaslag og það var bara sagt berum orðum, þeir sem standa með mér fara fyrir aftan mig og þeir sem standa með Huldu fara fyrir aftan hana og það komu kannski bara tveir fyrir aftan mig. Ég lenti líka í að vera ekki boðið í afmæli. Ég var kannski sú eina sem var ekki boðið og vissi ekkert af hverju,“ segir Hulda. Það að vera ekki samþykkt í hópnum hafði slæm áhrif á sjálfsmynd Huldu og hún kveðst ekki hafa fundið sig fyrr en á unglingsárunum, þegar hún eignaðist góða vinkonu sem tók henni eins og hún var. Hulda vann úr sinni reynslu og hélt að þessum kafla lífs hennar hefði verið lokað, en síðustu helgi rakst hún á skólasystur sína úr grunnskóla. „Bara það að ég mætti henni á förnum vegi olli því að allt í einu varð ég, sem er 34 ára mamma og mjög sjálfsörugg, varð bara allt í einu aftur 12 ára með öllum sársaukanum sem fylgdi þá,“ segir hún. Huldu fannst erfitt að sjá hversu djúpstæð áhrif þessi reynsla hafði og sem þriggja barna móðir sem er að ljúka kennaranámi, sér hún hversu mikilvægt er að fræða börn. „Mín heitasta ósk sem foreldri er að ég geti alið börnin mín upp og fengið að heyra, vá það var svo frábært, sonur þinn stóð með mér þegar allir hinir voru einhvers staðar annars staðar.“ Hún hvetur foreldra og aðra forráðamenn til að setjast niður með börnum sínum og kenna þeim að sýna styrk. „Og að það gefi okkur helling að standa með þeim sem virðast vera út undan því það færi okkur bara einhverja gleði í hjartað,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira