Innlent

Seldu vorrúllur fyrir neyðarstarf

Freyr Bjarnason skrifar
Filippseyingar og Pólverjar á Dalvík hjálpuðust að við að búa til vorrúllurnar.
Filippseyingar og Pólverjar á Dalvík hjálpuðust að við að búa til vorrúllurnar. mynd/albert capin
Filippseyingar búsettir á Dalvík tóku sig saman á sunnudag og stóðu fyrir fjáröflun til styrktar neyðarstarfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á Filippseyjum.

Framtakið fólst í sölu á vorrúllum og tóku bæjarbúar framtakinu opnum örmum. Alls söfnuðust 438.500 krónur.

Annalou Perez er meðlimur félags Filippseyinga á Dalvík, FILCOM Dalvík, og ein af skipuleggjendum fjáröflunarinnar. „Þetta var alveg ótrúlegt. Ég er ekkert smá ánægð með viðbrögðin,“ segir hún.

Annalou og félagar fengu hjálp frá Taílendingum og Pólverjum við að útbúa vorrúllurnar en fyrirtækið Samherji útvegaði hráefnið. Samanlagt urðu rúllurnar yfir þrjú þúsund og seldust þær upp á innan við klukkustund. Þá var enn biðröð fyrir utan Samherja og ákvað fólk þá að gefa pening í söfnunina. „Fólkið á Dalvík er mjög hjálpsamt,“ segir Annalou, sem er mjög þakklát fyrir peningana sem söfnuðust.

Taílendingar búsettir á Dalvík lögðu Filippseyingunum einnig lið með því að selja núðlur fyrir 78 þúsund krónur.

Aðspurð segist Annalou ekki eiga skyldmenni sem lentu í hamförunum á Filippseyjum en hún viti af fólki sem er enn að leita að skyldmennum sínum. „Það er gott að vita til þess að börnin á Filippseyjum fái þennan pening. Ég á börn sjálf. Ég get gefið þeim að borða þegar þau eru svöng og hlýjað þeim þegar þeim er kalt. Þess vegna er mjög erfitt að hlusta á börnin úti á Filippseyjum gráta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×