Framkvæmdarstjóri Festu: Ekki óánægja með Ragnheiði Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2013 15:54 Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu. mynd/gva „
Það var beinlínis ekki óánægja með Ragnheiði Elínu [Árnadóttur] á fundinum en gestum fundarins þótti nauðsynlegt að meiri fræðsla um samfélagsábyrgð þyrfti að eiga sér stað innan ráðuneytisins,“ segir Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu.Umræða skapaðist á fundi Stjórnvísis í gær, sem haldinn var í höfuðstöðvum Arionbanka, undir yfirskriftinni „Samfélagsábyrgð fyrirtækja – hvert er hlutverk stjórnvalda?“, þegar Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tjáði skilning sinn sig á hugtakinu samfélagsábyrgð fyrirtækja. Ragnheiður Elín sagði á fundinum að hún mæti sem svo að helstu leiðir ríkisfyrirtækja til þess að sýna samfélagsábyrgð væru í formi sjóða og styrkja.Fram kom í frétt á vefsíðu Festu fyrr í dag að ekki voru allir á eitt sáttir með þann skilning sem ráðherra og aðstoðarmaður ráðherra lögðu í samfélagsábyrgð og hlutverk ríkisins. „Menn voru alls ekki óánægðir með að hún skildi ákveða að mæta á fundinn og tala um þessi mál. Hún þurfti að vísu að yfirgefa fundinn eftir að hún hafði tekið til máls og því sat aðstoðarmaður hennar fyrir svörum þegar orðið var laust.“ Ráðherra bar skylda til að mæta á fund ríkisstjórnar sem hófst strax eftir ræðu hennar og gat Ragnheiður því ekki setið fyrir svörum í gær. Festa er miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og eru 25 íslensk fyrirtæki félagar. „Það skapaðist mjög fjölbreytt umræða eftir fundinn í gær og voru orkumál töluvert í umræðunni. Síðan kom til að mynda spurning úr sal um það hvernig yfirvöld geta verið ákveðin fyrirmynd þegar kemur að samfélagsábyrgð. Það komu fram margar frábærar hugmyndir um það hvernig ríkið getur hvatt fyrirtæki í því að vera ábyrgari.“ Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja er hugtak sem er nokkuð nýtt á nálinni hér á landi en hefur síðustu misseri fengið töluverðan meðbyr í íslensku samfélagi. „Það hefur orðið nokkuð mikil vitundarvakning þegar kemur að samfélagsábyrgð en við Íslendingar eru samt sem áður komnir heldur stutt á veg, sérstaklega ef við berum okkur saman við hin norðurlöndin. Þar er slík ábyrgð orðin meiri hluti af daglegri starfsemi fyrirtækja. Það er samt gaman af því að íslensk fyrirtæki eru í auknu mæli að átta sig á því að neitendur eru að kalla eftir því að vörur og starfsemi komi til með ábyrgari hætti.“ „Það er greinilega aukinn áhugi hjá fyrirtækjum að gerast félagar hjá Festu. Í dag eru 25 fyrirtæki félagar að Festu sem eru bæði stór og smá. Sex fyrirtæki voru stofnendur árið 2011 og á þessu ári hafa bæst við ný fyrirtæki í hópinn.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira