Skýrsluskilin frestast enn lengur 14. febrúar 2013 06:00 Alþingi skipaði nefndir um íbúðalánasjóð og sparisjóðakerfið haustið 2011. fréttablaðið/anton
Rannsóknarnefnd Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs mun ekki skila skýrslu sinni nú um miðjan febrúar eins og stefnt var að. Þetta staðfestir formaður nefndarinnar, Sigurður Hallur Stefánsson, við Fréttablaðið. Rannsóknarnefndin fundaði með forsætisnefnd þingsins í byrjun desember og þar kom fram að stefnt væri að skilum um miðjan febrúar. „Skýrslan er ekki hér til afhendingar,“ segir Sigurður núna. Það verði hún ekki heldur á næstu dögum. Hann segist ekki geta fullyrt hvenær vinnunni ljúki og vilji ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Rannsóknarnefndin um Íbúðalánasjóð og önnur um sparisjóðakerfið voru skipaðar haustið 2011, sú fyrrnefnda í byrjun september og sú síðarnefnda í ágústlok. Íbúðalánasjóðsnefndin átti upphaflega að skila skýrslu sinni til Alþingis sex mánuðum eftir skipun, eða í byrjun mars í fyrra, og sparisjóðanefndin átti að skila af sér 1. júní í fyrra. Það hefur síðan frestast ítrekað. Hjá Hrannari Má S. Hafberg, formanni sparisjóðanefndarinnar, var fátt um svör í gær þegar spurt var um gang vinnunnar. Hann kveðst vilja upplýsa þingið um stöðuna fyrst. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingforseti segir nefndirnar munu gera forsætisnefnd grein fyrir stöðu rannsóknanna á fundi á mánudaginn kemur. - sh
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira