Lífið

Uppboð Kvennaathvarfsins á Bland.is

Kvennaathvarfið hélt fjáröflunarátak í haust, undir yfirskriftinni Öll með tölu. Það sem færri vita er að margir af færustu hönnuðum landsins tóku sérlegri hönnunaráskorun Kvennaathvarfsins og hönnuðu grip sem var innblásinn af Kvennaathvarfstölunni.

Nú stendur yfir uppboð á þessum dýrgripum í samstarfi við Bland.is og rennur allur ágóði til Kvennaathvarfsins. Uppboðið hófst 3. apríl og lýkur á miðnætti á morgun, 8. apríl.

Hönnunin er eftir Hlín Reykdal, Steinunni Völu, Vík Prjónsdóttur og fleiri. Gripirnir hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir hönnuðina sjálfa, eins og sjá má í umsögnum þeirra á uppboðsvefnum - sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.