Innlent

Tveir Íslendingar björguðu fjölskyldu úr brennandi íbúð í Árósum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Tveir Íslendingar, þeir Gunnar Þór Nilsen og Friðrik Elís Ásmundsson, björguðu í morgun rúmenskri fjölskyldu út úr brennandi íbúð í Árósum. Gunnar lýsir því í samtali við fréttastofu hvernig hann hafi tekið eftir því út um gluggan hjá sér að í næstu blokk var óeðlileg birta í einum glugganum.

Á örskotsstund hafi honum orðið ljóst að eldur væri að kvikna í gardínu. Hann vakti þá Friðrik félaga sinn og sagði honum að hlaupa yfir að blokkinni, á meðan hann hringdi sjálfur á slökkviliðið og fór svo Friðriki til aðstoðar.

„Svo þegar við komum þarna að blokkinni, þá er bara kominn eldur þarna út um gluggann á einu herberginu. Þetta gerðist á einni og hálfri mínútu,“ segir Gunnar Þór.

Einn íbúinn hafði þá komið sér út á einskonar þak yfir verönd, og segir Gunnar að eldtungurnar hafi hreinlega sleikt hann þannig að hann sviðnaði töluvert, en þá var eldurinn búinn að breiðast út um alla íbúð. Maðurinn sagði þeim að fleiri væru í íbúðinni og Gunnar og Friðrik fara þá inn í íbúðina þar sem þeir mættu konu með lítið barn í örmunum.

„Við tókum fólkið yfir í íbúðina til okkar og gáfum þeim föt og svona, því slökkviliðið var ekkert komið,“ segir Gunnar en í íbúðinni voru tveir karlmenn, ein kona og litla barnið.

Þeir Friðrik og Gunnar fóru síðan aftur yfir að blokkinni og aðstoðuðu íbúa í nærliggjandi íbúðum við að komast út, en eldurinn náði ekki að læsa sig í hinar íbúðirnar, þótt um töluverðar reykskemmdir sé að ræða.

Slökkviliðið mætti síðan skömmu síðar á svæðið og gekk vel að ráða niðurlögum eldsins. Fjölskyldan í íbúðinni sem brann var síðan öll flutt á sjúkrahús og segir Gunnar að einn maðurinn hafi orðið verst úti, hann hafi sviðnað töluvert og öll kvörtuðu þau unan særindum í lungum.

Gunnar og Friðrik þurftu hinsvegar ekki á sjúkrahús þótt hár þeirra hafi sviðnað dálítið. „Okkur er dálítið illt í lungunum, þetta var svo svakalegur hiti.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gunnar Þór hefur bjargað mannslífum. Nánar verður fjallað um björgunarafrek hans í fréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá kl. 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×