Panta stórhættulega leysibenda af netinu 19. desember 2013 08:59 Líta sakleysislega út en tækin geta valdið stórskaða, t.d. sjónskaða á augnabliki.
Starfsmenn Tollstjóra og Geislavarna ríkisins hafa á þessu ári gert upptæka allmarga leysibenda sem eru margfalt aflmeiri en almenn notkun réttlætir. Þeir sem reyna að koma slíkum tækjum inn til landsins eru oft unglingar. Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum, segir að leysibendar sem eru ætlaðir til almennra nota hafi geislun sem er undir einu millivatti (mW). Sérstakt leyfi fyrir sterkari bendum fær venjulega aðeins fagfólk til sértækra nota, enda getur leysir sem er aflmeiri en eitt mW valdið sjónskaða á augnabliki. Að sögn Þorgeirs er styrkur aflmesta leysibendisins sem reynt hefur verið að koma inn í landið 5.000 mW [5W] og var tækið stöðvað í tolli. Slíkt tæki er stórhættulegt, enda þarf aðeins endurkastið af geisla af styrk yfir 500 mW til að valda augnskaða, auk hættu á bruna á húð og íkveikjuhættu. Spurður hverjir það séu helst sem sækjast eftir því að eignast leysibenda sem eru svo öflugir segir Þorgeir það í langflestum tilfellum vera stráka og stelpur undir 18 ára aldri sem hafa aðgang að greiðslukorti. Á vefsíðu, þaðan sem margir af vinsælustu leysunum koma, er algengt að styrkur þeirra sé 100-2000 mW. Þeir eru hins vegar ekki merktir framleiðanda og eru oft mun öflugri en þeir eru gefnir upp fyrir að vera. Þorgeir minnir á að þegar hefur notkun þessara tækja valdið fólki skaða hér á landi. Augnlæknar fengu 13 ára gamlan dreng til meðferðar á Landspítala í maí með alvarlegan skaða á báðum augum af völdum leysibendis sem var langt undir 100 mW. Dæmin eru fleiri um augnskaða, en önnur alvarleg dæmi eru þar sem börn hafa gert sér það að leik að beina öflugum geisla að ökumönnum flugvéla og bifreiða.Einar Stefánsson.Margfalt aflmeiri en lækningatækin Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir augndeildar Landspítala, annaðist drenginn sem hlaut augnskaðann í vor en er ekki heimilt að gefa upplýsingar um líðan hans í dag. „Hins vegar get ég sagt að almennt séð valda svona brunar varanlegum skaða. Sem betur fer get ég ekki sagt að þetta sé algengt en maður sér á almannafæri oft græna geisla dansa á húsum. Það eru því allmargir guttar sem eru með svona tæki undir höndum,“ segir Einar en vill ekkert fullyrða um hvort mikið sé af tækjum sem hafa ógnarstyrk eins og þeir sem hafa verið gerðir upptækir. Hann segir að kannski sé alvarlegast að börn og unglingar líti á tækin sem leikföng, þegar ekkert gæti verið fjær sanni. „Í því felst hættan, og þetta er sami hópurinn og er að leika sér með flugelda í kringum áramót, oft með skelfilegum afleiðingum. Þetta verða foreldrar og aðrir að hafa hugfast.“ Einar segir að leysibendir sem er 5.000 mW sé án nokkurs vafa stórhættulegt tæki og tekur dæmi. „Tækin sem við notum í lækningum til að brenna í augað eru nokkur hundruð millivött. Þannig að tækin sem verið er að smygla hingað eru 10 til 20 sinnum aflmeiri en það sem við notum í lækningaskyni,“ segir Einar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira