Stökkbreytt gen sem tengjast geðklofa auka sköpunargáfu Heimir Már Pétursson skrifar 19. desember 2013 14:06 Þeir sem hafa stökkbreytt gen sem tengjast geðklofa og einhverfu eru líklegri til að hafa mikla sköpunargáfu segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar visir/gva
Íslensk erfðagreining hefur greint frá uppgötvun á tengslum stökkbreyttra gena sem tengjast geðklofa og einhverfu við aukna sköpunargáfu. Forstjóri fyrirtækisins segir að þeir sem hafi þessi stökkbreyttu gen séu líklegri til að hafi meiri sköpunargáfu en aðrir. Greint var frá uppgötvun Íslenskrar erfðagreiningar í tímaritinu Nature seinnipartinn í gærdag. Þar kemur fram að þeir einstaklingar sem hafa stökkbreytt gen sem auka líkur á að einstaklingar fái geðklofa eða einhverfu séu meira skapandi en aðrir. Kára Stefánssyni forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar þykir merkilegast við þessar niðurstöður hvaða áhrif þessi stökkbreyttu gen hafa á einstaklinga sem hafa þau en eru hvorki með geðklofa né einhverfu. „Þegar þær eiga sér stað í einstaklingum sem eru hvorki með geðklofa eða einhverfu þá hafa þær áhrif á hugsun. Það er að segja að þetta eru stökkbreytingar sem tífalda líkurnar á geðklofa t.d. en engu að síður eru í kringum 80 til 90 prósent af þeim sem eru með stökkbreytinguna en fá ekki sjúkdóminn,“ segir Kári. Þetta þýði að þær hugsanabreytingar eða vandamál sem eigi sér stað hjá geðklofasjúklingum séu ekki afleiðing sjúkdómsins heldur megi leiða að því líkur að sjúkdómurinn sé afleiðing af þessum hugsanabreytingum. „Síðan er annað sem mér þykir mjög spennandi, sem er að sköpunargáfa, mikil sköpunargáfa, virðist algengari í fjölskyldum þar sem geðklofi á sér stað heldur en annars staðar. Og til þess að geta verið skapandi þarftu að hugsa öðruvísi,“ segir Kári. Því sé ekki ólíklegt að þessar stökkbreytingar hafi á sér tvær myndir. Annars vegar þær alvarlegu afleiðingar að einstaklingurinn þrói með sér geðklofa eða einstaklingurinn verði meira skapandi en ella hins vegar. „En þetta er bara fyrsta skref hjá okkur í þá átt að nota erfðafræðina til að búa til skilning á því hvernig heilinn virkar, sem er auðvitað mikilvægasta líffæri mannsins. Það er það líffæri sem skilgreinir okkur sem dýrategund og síðan okkur sem einstaklinga innan tegundarinnar,“ segir Kári. Það komi ekki á óvart að 80 til 90 prósent þeirra sem eru með þessi stökkbreyttu gen fái ekki geðklofa. Þetta sé algengt innan erfðafræðinnar. „En taktu eftir því að tíðnin á geðklofa í okkar samfélagi er einhvers staðar á milli 0.6 til eitt prósent. En einstaklingarnir sem eru með þessa stökkbreytingu eru með tíu sinnum meiri líkur á að fá sjúkdóminn. Þannig að þessar stökkbreytingar auka mjög mikið líkurnar á sjúkdóminum en engu að síður er það langt, langt í frá að vera 100 prósent þeirra sem eru með stökkbreytinguna sem fá sjúkdóminn,“ segir Kári Stefánsson.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira