Eyþór Ingi ættleiddur 2. nóvember 2013 09:00 Eyþór Ingi og Atómskáldin slá botn í Tónlistarvikuna á föstudagskvöldið á Selfossi. Mynd/JESSICA GOW „
Það verður mjög mikið um að vera, við ætlum vekja upp tónlistaráhuga fólksins í bænum,“ segir Bjarmi Skarphéðinsson. Hann er annar af skipuleggjendum Tónlistarvikunnar sem fram fer á Selfossi í vikunni en mikil og skemmtileg dagskrá einkennir hana. „Við á Selfossi ættleiðum tónlistarmanninn Eyþór Inga Gunnlaugsson þessa viku og mun hann spila, fræða og tjá hug sinn til tónlistar á ýmsum samkomum,“ útskýrir Bjarmi. Eyþór Ingi kemur fram í öllum leikskólum og grunnskólum í sveitarfélaginu Árborg, þar sem hann mun spila og eiga skemmtilega stund með krökkunum og fólkinu. „Þetta leggst mjög vel í mig og verður forvitnilegt og skemmtilegt,“ segir Eyþór Ingi um tónlistarvikuna. Ásamt því að skemmta og spjalla við krakkana í skólunum heldur hann fyrirlestur í félagsmiðstöðinni Zelsíuz. „Ég ætla bara að spjalla við fólkið, eiga góða stund með þeim og skapa umræðu um tónlist og gildi hennar,“ bætir Eyþór Ingi við. Þá mun söngvarinn dæma bæði í söngvakeppni Fjölbrautaskóla Suðurlands og söngvakeppni félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz, sem báðar fara fram í vikunni. Selfoss hefur getið sér gott orð sem einn fremsti tónlistarbær Íslands, en er þó í mikilli samkeppni við Keflavík og Dalvík. „Það er blómlegt tónlistarlíf hérna á Selfossi og mörg þekkt nöfn eiga rætur að rekja hingað. Við viljum endilega vekja enn meiri athygli á tónlistinni með þessari Tónlistarviku,“ bætir Bjarmi við. Margar þekktar sveitir á borð við Skítamóral, Ingó og Veðurguðina og Mána eru allar frá kaupstaðnum. Allt frá poppi yfir í rokk, og allt þar á milli. Tónlistarvikunni lýkur með stórtónleikum í íþróttahúsinu IÐU, þar sem Eyþór Ingi og hljómsveit hans, Atómskáldin, koma fram, ásamt kór FSU og fleiri sveitum frá Selfossi. „Það verður öllu tjaldað til, þarna verður ljósa- og hljóðbúnaður á heimsmælikvarða,“ bætir Bjarmi við að lokum.Eyþór Ingi og Atómskáldin gáfu nýverið út sitt fyrsta smáskífulag, Hárin rísa, en það er á væntanlegri plötu þeirra félaga. Lagið má finna hér fyrir neðan. Miðasala á tónleikana fer fram midi.is
Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira