Hefnd er ekki skemmtilegt orð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júlí 2013 15:00 Logi Ólafsson. Mynd/Valli „
Þetta er auðvitað mjög skemmtileg viðureign liðanna sem mættust í bikarúrslitum í fyrra. Nú fáum við heimaleik og það er alltaf eina óskin sem menn láta uppi og vilja í undanúrslitum." Þetta sagði Logi Ólafsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að dregið var í undanúrslit Borgunarbikars karla. Stjarnan mætir KR á heimavelli sínum í Garðabæ miðvikudaginn 31. júlí. „Mótherjinn er í erfiðari kantinum, það er ekki hægt að segja annað. Því er ekki að neita að KR er sjálfsagt besta lið landsins í dag. Að minnsta kosti miðað við stöðuna í deildinni" segir Logi. Stjarnan fær því kærkomið tækifæri til að hefna fyrir tapið gegn KR í bikarúrslitum í fyrra. Logi kann þó ekki vel við orðið hefnd. „Sumir kjósa að nota þetta orð en mér finnst það ekki mjög skemmtilegt. Við veljum ekki velta fortíðinni mikið fyrir okkur. Við viljum gera vel í framtíðinni." Stjarnan hefur ekki enn unnið deildar- eða bikarmeistaratitil í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Ætli möguleikinn í bikarnum sé meiri en í deildinni í ár þar sem Stjarnan er fimm stigum á eftir toppliði KR? „Það er ljóst að vegurinn að titli í bikarnum er styttri en í deildinni. Þú þarft að ljúka fimm leikjum til að verað bikarmeistari á meðan það þarf 22 í deild. Þannig að það segir sig sjálft að það er styttra í titil í bikarnum og getur verið auðveldara," segir Logi. Hann minnir þó á erfiða leið Stjörnunnar í bikarnum hingað til. „Við fórum til Akureyrar í framlengingu og vítakeppni, við fengum FH heima og síðasti leikur var mjög erfiður líka. Við mættum Pepsi-deildarliðum í öllum tilvikum. Þegar lið eru komin svona langt, og aðdragandinn verið svona erfiður, þá leggja menn allt í þetta."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira