Jólapeysa Barnaheilla 30. október 2013 16:45 Ragnheiður Eiríksdóttir prjónahönnuður hannaði jólapeysu ársins fyrir Barnaheill – Save the Children á Íslandi. mynd/stefán
Jólapeysan sem fyrirbæri hefur alltaf verið hallærislega töff í ljótleika sínum. Jólapeysan 2013 er hins vegar bara töff,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, prjónahönnuður hjá Knitting Iceland, en hún hannaði og prjónaði Jólapeysuna 2013 fyrir samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi. Jólapeysan er hluti af söfnunarátaki Barnaheilla sem hefst í nóvember og mun uppskriftin að peysunni verða seld á útsölustöðum Lopa um allt land. Hluti ágóðans af sölunni rennur til Barnaheilla og segir Ragnheiður að allir ættu að ráða við prjónaskapinn. „Uppskriftin er einföld. Peysan er prjónuð að ofan, byrjað á hálsmálinu og prjónað niður. Það er minni frágangur eftir á þegar sú aðferð er notuð. Ég held að flestir sem kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið ættu að ráða við þessa peysu,“ segir Ragnheiður. Munstrið er röð af jólatrjám á axlarstykkinu og er öll peysan hressilega skreytt með glimmergarni, bjöllum, pallíettum og jólakúlum sem saumaðar eru í eftir á. Allt skraut fylgir með þegar uppskriftin er keypt. Þetta er fyrsta jólapeysan sem Ragnheiður hannar og segir hún áskorunina hafa verið þrælskemmtilega. „Þetta var æðislega gaman og svolítið ævintýralegt því ég hafði einn og hálfan sólarhring til að hanna og prjóna peysuna. En ég hef einmitt svo gaman af verkefnum sem virðast nánast ómöguleg,“ segir hún hlæjandi. „Það var lítið sofið meðan á þessu stóð og úr varð að bolurinn og ermarnar voru prjónuð á handprjónavél, svo allt gengi upp. Það reyndist mjög snjallt en það sést nánast enginn munur á þeim hluta og þeim sem prjónaður var í höndunum,“ segir Ragnheiður. „Jón Gnarr borgarstjóri mun fá þessa peysu til eignar og hann var hæstánægður þegar hann mátaði hana,“ bætir hún við og segir verkefnið í heildina bæði hlýlegt og skemmtilegt. „Það að prjóna fallega jólapeysu við kertaljós og halda svo jólapeysuboð og safna fyrir góðum málstað er frábær hugmynd. Það verða alls ekki bara prjónanördar sem munu stökkva á þetta, heldur getur hver sem er haldið jólapeysupartý. Ég mun pottþétt halda peysupartý sjálf.“
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira