ESB smalar hælisleitendum Svavar Hávarðsson skrifar 29. október 2013 06:00 Blóðhefnd í Albaníu verður til þess að ungir piltar sitja inni fyrir morð. Lög um blóðhefnd gera það að verkum að þeir eiga ekki margra kosta völ. Nordicphotos/AFP
Nokkrum albönskum fjölskyldum hefur verið vísað úr landi og verða fluttar af landi brott í kvöld. Farþegaflugvél á vegum landamærastofnunar Evrópusambandsins, (Frontex), kemur til landsins og sækir fólkið sem allt hefur sótt um hæli hér á landi. Flugvélin hefur viðkomu í fleiri löndum í sama tilgangi, og flytur alls um 160 albanska hælisleitendur til heimalandsins. Viðkomustaðirnir eru meðal annars í Svíþjóð þangað sem vélin flýgur í nótt og í Róm á Ítalíu, að því er Fréttablaðið kemst næst. Um sautján Albana er að ræða, þar af sex börn. Eitt þeirra er fimm mánaða gamalt sem fæddist hér á landi. Ein konan í hópnum er komin sex mánuði á leið og orðin veik vegna álags, herma heimildir Fréttablaðsins. Jafnframt er gagnrýnt að aðeins líða um tveir sólarhringar frá því fólkinu var tilkynnt um að komið væri að brottför og þangað til þau verða flutt um borð í flugvélina. Einu upplýsingarnar sem fengust frá embætti ríkislögreglustjóra voru að innanríkisráðuneytið hafi falið embættinu að skipuleggja og annast heimferð sautján albanskra ríkisborgara sem Útlendingastofnun hefur synjað um hæli og frávísað. Um tilurð þess að vél á vegum Frontex fer um Evrópu við að sækja albanska hælisleitendur segir í svarinu að „Ísland er aðili að Frontex og tekur þátt í ýmsu samstarfi á grundvelli þess og í samræmi við reglur ESB (Return Directive). Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður hjá Vox lögmannsstofu, segir að hluti hópsins hafi farið fram á frestun réttaráhrifa á úrskurði innanríkisráðuneytisins um frávísun en þeirri beiðni var hafnað. En almennt er frestun réttaráhrifa ekki samþykkt á meðan beðið er eftir niðurstöðu dómstóla. Hluti af hópnum kom hingað til lands fyrir landsleik Íslands og Albaníu í september, en eins og greint var frá á þeim tíma skiluðu þrettán þeirra sér ekki í flug að leik loknum. Á þeim tíma greindi Útlendingastofnun frá því að 36 Albanir höfðu sótt um hæli á Íslandi á þessu ári eða þrefalt fleiri en árið á undan. Albanar eru næstfjölmennasti hópurinn sem sótt hefur um hæli á þessu ári en aðeins Króatar eru fleiri. Öllum umsóknum hælisleitenda frá Albaníu hefur verið hafnað. Erfitt er að fá upplýsingar um á hvaða grundvelli Albanir óska eftir hæli á Íslandi. Heimildir Fréttablaðsins greina að flestir nefni að þeir séu á flótta undan blóðhefnd í heimalandinu sem byggir á aldagömlum albönskum lögum - Kanun lögum. Staðfest er að það á við um tvær fjölskyldur sem fara af landi brott í kvöld. Erfitt getur verið fyrir yfirvöld að sannreyna frásagnir um hvort verið er að flýja blóðhefnd. Lögin útlista meðal annars hvernig standa má að blóðhefndinni. Drepa má samkvæmt lögunum karlmenn á öllum aldri. Þar sem ekki má framfylgja lögunum á heimili viðkomandi eru þess dæmi að drengir og ungir karlar hafi aldrei farið út af heimilinu.Flestir flýja blóðhefndErfitt er að fá upplýsingar um á hvaða grundvelli Albanar óska eftir hæli á Íslandi. – Heimildir Fréttablaðsins greina að flestir nefni að þeir séu á flótta undan blóðhefnd í heimalandinu sem byggist á aldagömlum albönskum lögum – Kanun-lögum. Staðfest er að það á við um tvær fjölskyldur sem fara af landi brott í kvöld. Erfitt getur verið fyrir yfirvöld að sannreyna frásagnir um hvort verið er að flýja blóðhefnd.Lögin útlista meðal annars hvernig standa má að blóðhefndinni. Drepa má samkvæmt lögunum karlmenn á öllum aldri. Þar sem ekki má framfylgja lögunum á heimili viðkomandi eru þess dæmi að drengir og unglingar hafi aldrei farið út af heimilinu.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Sjá meira