Lára Hanna dýrmætur fulltrúi almennings Jakob Bjarnar skrifar 29. október 2013 13:02 Píratar styðja Láru Hönnu heilshugar -- sinn fulltrúa í stjórn RÚV.
Píratar hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar um stöðu Láru Hönnu Einarsdóttur, varamanns í stjórn RÚV, og gagnrýni hennar á Gísla Martein Baldursson: Píratar styðja sinn fulltrúa heilshugar, þó menn velti því fyrir sér hvort við hæfi sé að stjórnarmaður ráðist á einstaka dagskrárliði. „Ástæða þess að Lára Hanna Einarsdóttir varð, ásamt Pétri Gunnarssyni, fyrir valinu hjá Pírötum í stjórn RÚV var einmitt út af því að við getum treyst því að hún er ekki í neinu flokksliði, heldur er sjálfstæð kona sem þorir að vera óþolandi flugan í tjaldinu. Hvorki við þingmenn Pírata, né nokkrir aðrir stjórnmálamenn getum haft áhrif á Láru Hönnu og það gerir hana að dýrmætum fulltrúa almennings í stjórn RÚV,“ segir Píratar. Ástæða þess að Píratar vilja koma þessu á framfæri er umfjöllun í fjölmiðlum og ummæli sem fallið hafa í þjóðfélagsumræðunni, um gagnrýni Láru Hönnu Einarsdóttur, varamanns í stjórn RÚV, á sunnudagsþátt Gísla Marteins Baldurssonar. „Þingflokkur Pírata stendur heilshugar með tjáningar- og málfrelsi allra landsmanna, þar á meðal og ekki síst þeirra sem skipaðir hafa verið sem fulltrúar almennings í stjórnum og ráðum á vegum hins opinbera.“ Fjölmargir hafa orðið til að tjá sig um stöðu Láru Hönnu, þeirra á meðal Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands, sem segir eftirfarandi í Facebook-uppfærslu í gærkvöldi: „Þessi kona er einhver furðufugl. Hún hefur gert myndbönd um marga. Ég botna ekki í, hvers vegna henni eru falin einhver trúnaðarstörf. En því miður gat ég ekki horft á þátt Gísla Marteins, þar sem ég var (og er) erlendis í fyrirlestraferð.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira