Útleiga heldur gæsluþyrlum á lofti Heimir Már Pétursson skrifar 26. ágúst 2013 07:15 Þór, flaggskip Landhelgisgæslunnar, hefur meira og minna verið bundið við bryggju í sumar. Einungis hefur tekist að halda einu varðskipi úti að jafnaði á þessu ári. Mynd/Friðrik Þór
Útköllum hjá þyrlum Landhelgisgæslunnar fjölgar ört með auknum straumi ferðamanna. Leiga á flugvél og skipum Gæslunnar stendur undir starfsemi þyrlusveitar. Flaggskipið Þór er oftar en ekki bundið við bryggju. Útköllum björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar hefur fjölgað um 28 prósent fyrstu átta mánuði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra og eru 46 prósentum fleiri en að meðaltali síðustu tíu ár. Fjölgun útkalla í sumar er jafnvel enn meiri. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að rekja megi fjölgun útkalla til aukinnar ferðamennsku og fjölgunar ferðamanna til landsins.SIF vinnur fyrir LÍF Landhelgisgæslunni hefur tekist með herkjum og útsjónarsemi að halda úti flugi þriggja björgunarþyrlna undanfarin ár. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að þetta hafi tekist með því að leigja TF-SIF flugvél Gæslunnar til verkefna í útlöndum sem og eitt varðskipanna. Tekjur af þessari leigu hafi staðið undir kostnaði við að endurnýja TF-LÍF, sem er eina þyrlan í eigu Gæslunnar, og halda henni og tveimur leiguþyrlum úti. stur.Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.. Samkvæmt áætlunum um rekstur Landhelgisgæslunnar sem staðfestar eru af ríkisstjórnum þyrfti Gæslan að halda úti þremur öflugum varðskipum, flugvél og þremur til fjórum þyrlum. Nýjasta og stærsta skip flotans, Þór, hefur hins vegar meira og minna verið í landi frá því í vor og verður væntanlega ekki á sjó nema í um 150 daga á þessu ári. Þá hefur flugvélin nýja verið stóran hluta ársins í verkefnum í útlöndum.Eitt varðskip á sjó „Með þessum erlendu verkefnum höfum við náð að halda mannskapnum. Náð að passa reynsluna og þekkinguna sem er til hjá Landhelgisgæslunni og sloppið við að segja upp fjölda fólks,“ segir Georg. Ef Gæslan fengi það fjármagn sem hún þyrfti segir Georg að þá yrðu a.m.k. alltaf tvö varðskip á sjó og eitt í landi, flugvélin væri allt árið í eftirlitsverkefnum sem og þyrlurnar. En frá hruni hefur einungis tekist að hafa eitt varðskip að jafnaði á sjó ásamt minni bátum sem stunda veiðieftirlit og flugvélin hefur meira og minna verið í útlöndum. Georg segir að tekist hafi að halda öllum tækjum á nægjanlegri hreyfingu til að þau grotnuðu ekki niður. „Það er hins vegar spurning hvenær kemur að þeim punkti að það þarf að taka ákvörðun um að leggja einhverju,“ segir hann. Ef gömlu varðskipunum verði lagt, sé mjög hæpið að þau færu nokkru sinni aftur í rekstur.
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ Sjá meira