Fjórar milljónir í stöðumælasektir Jakob Bjarnar skrifar 26. ágúst 2013 13:01 Kolbrún Jónatansdóttir hjá Bílastæðasjóði fær fjórar milljónir í kassann eftir Menningarnótt.
Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir rúmlega þúsund bíleigendur hafi verið sektaðir fyrir að leggja ólöglega á Menningarnótt sem ætti að skila 4 milljónum í kassann – greiði allir á réttum tíma. Á Facebook og víðar á netinu má sjá menn bera sig aumlega, þeir sem fengu stöðumælasekt á Menningarnótt og ýmsir eru reiðir. Meðal annars hefur verið bent á að ekki hafi breytt neinu þó menn hafi verið með bíla sína á svæði sem þeim var beint inn á -- klukkan 23:30 hafi verið kominn sektarmiði. En, nú bregður svo við að framkvæmdastjóri sjóðsins kannast ekki við neinar kvartanir. Og finnst ekki mikið til koma þegar nefnt er að menn hafi nefnt full vasklega framgöngu stöðumælavarða á Menningarnótt. „Ég held bara ekki,“ segir Kolbrún aðspurð hvort henni hafi ekki borist neinar kvartanir? „Nei, ég sé engin sérstök andmæli. Ég veit að það koma einhver andmæli. Það gerist bara alltaf hvort sem um er að ræða Menningarnótt eða einhverjir aðrir viðburðir. Jú, hér sé ég eitt gjald ítrekað af fyrstu hundrað sem ég er að skoða. Það er ekki meir.“ Kolbrún segir þetta ekkert nýtt að menn sem leggja ólöglega á Menningarnótt séu sektaðir. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Gakktu í bæinn!" og boðað var að þeir sem myndu leggja ólöglega yrðu umsvifalaust sektaðir, og því átti þetta ekki að koma neinum á óvart. Kolbrún segir að tíu stöðumælaverðir hafi verið að störfum, svipað og var í fyrra og hitteðfyrra og ljóst má vera að þeir hlífðu sér hvergi við störf sín. Kolbrún fletti upp í bókum sínum fyrir fréttastofu og þá kom á daginn að rúmlega þúsund bíleigendur voru sektaðir á Menningarnótt. Kolbrún segir að það eigi eftir að koma á daginn hvað skilar sér í peningum talið. „En, hérna... ef allir myndu nú borga núna. Og öll gjöld frádregin og ekkert niður fellt þá er þetta nálægt fjórum milljónum. En, þetta eru ekki peningar sem mér finnst spennandi. Hitt er miklu meira spennandi að fólk hlusti á viðvaranir og leggi ekki ólöglega. Ég veit ekki hvort þetta er bara alltof lágt eða fólki er alveg sama um að henda peningunum svona út um gluggann? Gjaldið er sennilega allt of lágt.“ Sekt við að leggja ólöglega eru fimm þúsund krónur en ef menn greiða innan þriggja daga er gjaldið 3.900 krónur og fjórar milljónirnar miðast við það. Kolbrún segir um að gera að borga sem fyrst, eða innan þriggja daga. „Mín budda, ég myndi ekki tíma þessu. Ég vil eyða 3.900 krónum í annað.“
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Halda áfram að ræða veiðigjöldin Innlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Fleiri fréttir Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Sjá meira