Slysalausir dagar í desember Samúel Karl Ólason skrifar 3. desember 2013 16:22 Mynd/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til allra í umferðinni að huga að hættum í umferðinni og gera þá daga sem eftir eru af árinu slysalausa. Umferðarslysum hefur fjölgað nokkuð það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra. „Það er óásættanlegt. Lögregla bendir á að slys má í flestum tilvikum rekja til óaðgæslu eða glannaskaps vegfarenda. Á því þurfa þeir sjálfir að taka og tryggja þannig að þeir valdi ekki öðrum þjáningu eða skaða sem aldrei verður bættur,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Því bendir lögreglan ökumönnum á þá hættu sem stafi af of miklum hraða og stuttu bili milli bíla í þéttri umferð á morgnana og kvöldin, þegar skyggni er lítið og götur hálar. „Með því að gæta að þessu tvennu, hraða og bili milli bíla, geta ökumenn komið í veg fyrir aftanákeyrslur sem eru orsakavaldur allt of margra slysa.“ Einnig bendir lögreglan ökumönnum að gæta að ökuhraða hvar sem gangandi vegfarendur eru á sveimi. „Of oft hefur það gerst á þessu ári að ekið er á gangandi eða hjólandi vegfarendur í íbúðahverfum, jafnvel á leið yfir gangbraut. Því verður að linna.“ Aðrir vegfarendur, gangandi og hjólandi, eru einnig hvattir til að huga að sínu öryggi með því að vera sýnilegir í umferðinni. „Það er trú lögreglu að umferðaröryggi náist best fram með breyttu og bættu viðhorfi vegfarenda til umferðar. Að þeir finni til ábyrgðar sinnar, hagi sér í samræmi við hana og krefjist þess sama af öðrum.“ „Stöndum undir ábyrgð okkar í umferðinni og gerum þá daga slysalausa sem eftir eru af árinu.“
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira