Dularfulla málverkahvarfið Jakob Bjarnar skrifar 3. desember 2013 13:19 Hér getur að líta hið mikla verk eftir Sigurð Örlygsson sem horfið er. Jón Axel Egilsson
Ólafur Gunnarsson rithöfundur saknar sárlega stórs og ómetanlegs málverks úr sinni eigu en það hvarf með dularfullum hætti. Ólafur auglýsir eftir stóru málverki eftir sjálfan Sigurð Örlygsson en þeir Ólafur hafa verið góðvinir í um fjögurra áratuga skeið. Missirinn er tilfinnanlegur.Gaf vini sínum verkið Forsagan er sú að á sýningu Sigurðar hjá Sævari Karli snemma árs 2005 stóð Ólafur og dáðist að þessu tiltekna verki og gerði þá Sigurður sér lítið fyrir og gaf vini sínum verkið -- af alkunnri höfðingslund. Því miður gat Ólafur ekki tekið við því þar og þá. En, hvenær uppgötvar Ólafur að verkið er horfið? „Það er í raun og veru þegar ég ætlaði að fara að hengja það upp. Sigurður geymdi það fyrir mig. Stærðin er slík og stutt síðan ég komst í aðstöðu til að geta sett það upp á vegg. Þá kallaði ég eftir verkinu og þá finnst það hvergi,“ segir Ólafur. Þetta er dularfullt málverkahvarf, ekki síst því talsverð fyrirferð er í verkinu. Það er 2 x 3 metrar. „Þetta er ansi stórt, þó ekki sé þetta það stærsta sem hann hefur málað.“ Ekki er hægt að meta hversu verðmætt verk þetta er. „Ég þekki það nú ekki, veit ekki hvernig það er,“ segir Ólafur. „Markaðurinn er allur á haus eftir fjárhagsumbyltingu seinni ára. En, þetta hefur talsvert tilfinningagildi.“Ólafur saknar verksins og heitir fundarlaunum.Efni í reifara Skaðinn er tilfinnanlegur. Sigurður flutti tvívegis á þessu tímabili og í seinna skiptið var hann við Rauðarárstíg. „Einhvern tíma í þessum flutningum gerist það að málverkið gufar upp eða það hefur á einhvern dularfullan hátt horfið úr geymslunni. Það er það sem við ekki kunnum skýringar á, hvað hefur skeð.“ Verkið ætti ekki að fara fram hjá nokkrum manni og Ólafur saknar þess. Og, í raun magnað að einhver hafi haft fyrir því að stela svo stóru verki, ef sú er raunin að umsvifamikill listaverkaþjófur hafi verið á ferð. „Það má nú segja. Ef það er ekki búið að koma því fyrir þá náttúrlega blasir það einhvers staðar við. Ég vissi það að verk eftir Tryggva Ólafsson hvarf fyrir nokkrum árum. Það var auglýst eftir því og það fannst þar sem það hékk uppá verk á einhverju verkstæði."Dularfulla málverkahvarfið? "Já, það gæti orðið flott efni í einhverja skáldsögu á þessum reifaratímum,“ segir Ólafur Gunnarsson sem bindur við það vonir að verkið komi í leitirnar. Hann heitir fundarlaunum og biður þann sem eitthvað veit um verkið að skjóta á sig línu og netfangið er icecad@gmail.com.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Sjá meira