Geðveikar pylsur 15. nóvember 2013 10:00 Pylsugerðin opnar í dag samnefndan veitingastað. Tvö af hópnum eru Þórunn Hannesdóttir og Unnsteinn Jóhannsson. Mynd/GVA
Í dag laugardag verður veitingastaðurinn Pylsugerðin opnaður. Matgæðingar landsins geta þó bara gætt sér á veitingum þar í dag því staðurinn er svokallaður „pop up“ veitingastaður. Eins og nafnið gefur til kynna verður boðið upp á heimagerðar pylsur og meðlæti við hæfi en allur ágóði dagsins rennur til Geðdeildar Landspítalans. Að sögn Þórunnar Hannesdóttur, eins aðstandenda veitingastaðarins, var ákveðið að hafa matseðilinn frekar einfaldan en um leið spennandi. „Við munum bjóða upp á tvær tegundir af ljúffengum pylsum, aðra úr nautakjöti og hina úr svínakjöti. Í þær verða síðan blönduð ýmis krydd og fleira góðgæti. Auk þess verður boðið upp á heimagert hrásalat og kók í gleri með lakkrísröri.“ Tvær stærðir diska eru í boði, annar á 500 kr. og hinn á 1.000 kr. Auk þess verður styrktarbaukur á staðnum fyrir frjáls framlög. Hópurinn sem stendur að veitingastaðnum kallar sig Pylsugerðina og samanstendur af fólki sem hittist reglulega til þess að búa til eigin pylsur. „Kærasti minn er breskur og átti í erfiðleikum með að finna almennilegar pylsur hér á landi. Við ræddum við vini okkar og ákváðum að taka málin í okkar hendur og hefja eigin pylsugerð.“ Sem fyrr segir mun Geðdeild Landspítalans njóta alls ágóða dagsins. Þórunn segir að verið sé að vinna að endurbótum við deildina og hópurinn vilji styrkja það frábæra framtak. „Flestir tengjast geðdeildinni á einn eða annan máta og því er þetta málefni sem mikilvægt er að styðja vel við. Fjölmörg fyrirtæki hafa einnig komið að verkefninu með okkur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það. Við búumst við góðri aðsókn enda höfum við verið dugleg að bjóða vinum og kunningjum. Um leið höfum við hvatt þá alla til að bjóða fleirum með sér. Því fleiri sem koma, því meiri verður ágóði Geðdeildarinnar.“ Pylsugerðin verður til húsa á Ljósvallagötu 8 í Reykjavík og verður opin milli kl. 15-17. Enginn posi verður á staðnum.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira