Kvennaskólinn í sigurvímu Marín Manda skrifar 15. nóvember 2013 17:15 Kvennaskólinn vann keppnina.
Framkvæmdakeppnin Boxið fór fram um síðustu helgi í Háskólanum í Reykjavík. „Það var svo gaman að fylgjast með hvernig þau unnu saman en þau stóðu sig svo vel og það var svo mikill keppnisandi í liðunum. Liðsheildin hafði jafnvel mest að segja um hvaða árangri þau náðu,“ segir Guðrún Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykavík. Um síðastliðna helgi fór fram úrslitakeppni framkvæmdakeppninnar Boxið en þar var keppt í hugvitssemi og verkviti. Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Samband íslenskra framhaldsskólanema stóðu að keppninni. Guðrún segir að mikill skortur sé á starfsfólki í iðnaði og tækni þrátt fyrir verulegt atvinnuleysi og bendir á að Boxið sé fjölbreyttari en flestar aðrar keppnir sem endurspegla atvinnulífið.Hvert lið var skipað fimm einstaklingum sem fengu hálftíma til að leysa hverja þraut sem hönnuð var af fyrirtækjum úr ólíkum greinum atvinnulífsins með aðstoð fræðimanna Háskólans í Reykjavík. „Þessi keppni reynir á útsjónarsemi, hæfileikann til að greina vandamálið, hópvinnu og færni í mannlegum samskiptum en á allt þetta reynir þegar þú kemur út á vinnumarkaðinn,“ útskýrir Guðrún. Í úrslitum voru Menntaskólinn í Reykjavík, Verslunarskóli Íslands, Tækniskólinn, Menntaskólinn við Sund, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Flensborgarskóli, Kvennaskólinn og Menntaskólinn við Hamrahlíð. Á síðasta ári sigraði Menntaskólinn í Reykjavík í Boxinu en í þetta sinn var það Kvennaskólinn sem bar sigur úr býtum. Í öðru sæti var Menntaskólinn í Reykjavík og í þriðja sæti var Fjölbrautaskóli Suðurlands. Liðsstjóri Kvennaskólans, Ólöf Svafarsdóttir, segir sigurinn hafa komið skemmtilega á óvart þar sem hópurinn hafi farið inn í keppnina með engar væntingar. „Við unnum rosalega vel saman og fengum öll Ipad Mini og gjafabréf í Lasertag í verðlaun svo við erum í sigurvímu,“ segir Ólöf glöð í bragði.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira