Úr dyrunum í sveitina 15. nóvember 2013 11:00 Óðinn Þór Kristinsson segir lífið í sveitinni vera algjöra sælu. Mynd/úr einkasafni „
Okkur langaði til að breyta til, þetta var draumur konunnar minnar,“ segir Óðinn Þór Kristinsson, fyrrverandi dyravörður á Vegamótum og núverandi bóndi í Eyjafjarðarsveit. Kona Óðins, Elísa Davíðsdóttir, stakk upp á búferlaflutningunum en Óðinn var afar neikvæður fyrir þeim í fyrstu. „Fyrsta svarið var bara þvert nei. En svo fór maður að hugsa þetta betur og mann langaði að prófa. Við erum með þrjú börn og þetta húsnæði hentaði okkur betur. Í bænum vorum við í 90 fermetra íbúð en fyrir svipað leiguverð fáum við 230 fermetra einbýlishús. Öll börnin fá sitt eigið herbergi og við erum meira að segja með aukaíbúð á neðri hæðinni. Þetta er algjör draumur.“ Fjölskyldan hefur búið í sveitinni í tvær vikur, en Óðinn finnur strax mun. „Börnin eru rosalega ánægð. Maður finnur strax að kaupæðið hefur minnkað, þau geta ekki verið að biðja um að kaupa þetta og kaupa hitt. Í sveitinni er allt miklu rólegra. Það var gott að komast úr bænum, komast úr stressinu.“ Óðinn stefnir í nautgriparækt en fer sér að engu óðslega í þeim málum. „Á morgun sæki ég fyrstu grísina okkar, þá getur maður formlega kallað sig bónda. Nautgriparæktin verður að bíða aðeins. Það er mikil binding að kaupa kálfa og við viljum sjá hvernig okkur gengur að aðlagast sveitalífinu fyrst. Það tekur tvö ár að rækta kálf upp í rétta þyngd, þannig að maður þarf að vera alveg viss ef maður ætlar að rækta nautgripi. Við byrjum því með svín og svo erum við að koma hlutunum þannig fyrir að við getum verið með hesta í hagabeit, séð um þá fyrir fólk yfir veturinn.“ Óðinn vinnur með bústörfunum – það er kostnaðarsamt að koma upp býli og því er nauðsynlegt að hafa aðrar tekjur. „Ég starfa í Slippnum á Akureyri. Býlið er í um 30 kílómetra fjarlægð. Ég kem heim sex á kvöldin og fer strax í að koma öllu í stand svo ég geti hafið bústörfin.“ Hann segir starf bóndans allt öðruvísi en dyravörsluna í Reykjavík. „Þetta er allt annað. Þetta er bara ótrúlega skemmtilegt líf. Maður er að allan daginn og sofnar svo með bros á vör. Þetta er sælulíf.“Glæsilegt býli Fjölskyldan býr á Hólabrekku í Eyjafjarðarsveit.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira