Innlent

Alvarlegt slys í Reykjanesbæ

Kona um þrítugt liggur alvarlega slösuð á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa orðið fyrir bíl á Reykjanesbraut, skammt frá Stekk í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeildina, þar sem hún gekkst strax undir aðgerð og er nú haldið sofandi í öndunarvél.

Ekki liggur fyrir hvernig þetta atvikaðist, en slæmt skyggni var á vettvangi slyssins. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×