Lauryn Hill fær góða dóma fyrir tónleika UE skrifar 3. desember 2013 08:00 Lauryn Hill á sex börn, en hefur einungis gefið út eina sólóplötu.
Lauryn Hill vakti rífandi lukku á tónleikum í Bowery-danssalnum í New York þrátt fyrir að gagnrýnendur hafi ekki haft miklar væntingar fyrirfram. Hún hefur oft fengið slæma dóma fyrir tónleika undanfarið. Blaðamaður New York Times segir hana snúa aftur sterka úr fangelsinu. Söngkonan, sem eitt sinn var ein vinsælasta söngkona heims, afplánaði nýverið þriggja mánaða fangelsisdóm fyrir skattaskuld. Að fangavistinni lokinni var henni gert að sæta stofufangelsi, en dómari gaf henni frí til að fara í tónleikaferðalag til þess að safna fyrir skuldinni við skattayfirvöld. Tónleikarnir á Bowery mörkuðu upphaf tónleikaferðalags hennar. Vinsældir hennar hafa dalað á undanförnum árum. Hin margverðlaunaða plata hennar The Miseducation of Lauryn Hill er enn eina stúdíóplatan sem hún hefur gefið út. Hún fylgdi plötunni eftir með tónleikaplötunni Unplugged 2.0. sem var umdeild og sögusagnir um að hún hefði gengið í sértrúarsöfnuð grasseruðu um svipað leyti. Lagatextar í sumum lögum tónleikaplötunnar renndu stoðum undir þann grun. Aðdáendur söngkonunnar eru hinsvegar þolinmóðir með eindæmum og margir bíða enn spenntir eftir nýju efni, þrátt fyrir að flestar fréttir af henni hafi verið neikvæðar í áraraðir. Hún er til dæmis ein þeirra tónlistarmanna sem leggja í vana sinn að mæta mörgum klukkutímum of seint á eigin tónleika. Svo hafa tónleikarnir hingað til oft fengið neikvæða dóma, og nýju lögin hennar hafa fengið misjafnar viðtökur, bæði hvað varðar gæði tónlistarinnar og innihald textanna. Hún sendi til dæmis frá sér lag sem heitir Neurotic Society rétt áður en hún fór í fangelsi sem sætti gagnrýni frá ýmsum hinsegin samtökum fyrir að kenna stelpustrákum og dragdrottningum um hnignun samfélagsins.Blaðamaður The Fader heldur því fram að boðskapurinn í lögum Lauryn Hill sé ekki endilega allra, og fáir séu sammála hugmyndafræðilegri andstöðu hennar við skattayfirvöld til að mynda. Í bloggfærslu eftir réttarhöldin tengdi hún dóminn yfir sér við þrælahald og rasisma. Hinsvegar segir blaðamaður The Fader að meðvitund áhorfenda um fangelsisvist hennar hafi gefið lögum hennar meiri vigt á þessum tónleikum. Hún hafi ekki talað um að vera nýkomin úr fangelsi á tónleikunum, en augljós meðvitund allra áhorfenda um hana hafi skapað sérstaka stemningu. Lauryn Hill neyddist til þess að skrifa undir plötusamning áður en hún fór í fangelsi til að borga hluta af skattaskuldinni, svo það má segja að söngkonan sé þvinguð af yfirvöldum til að gefa út plötu. Tilfinningar aðdáenda söngkonunnar í garð bandarískra skattayfirvalda hljóta því að vera blendnar. Ef ekki hefði komið til inngrips yfirvalda hefðu verið minni líkur á nýrri plötu. Ef marka má jákvæða dóma þessara tónlistargagnrýnenda virðist þolinmæði aðdáenda loksins ætla að borga sig.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira