Fangar komnir á undan í nettækninni Jakob Bjarnar skrifar 18. október 2013 13:43 Margrét Frímannsdóttir tekst á við nýja tegund glæpamanna sem kunna á tölvur.
Margrét Frímannsdóttir fangelsisstjóri á Litla Hrauni segir fanga taka breyttum reglum um tölvunotkun með nokkurri ró. Reglurnar voru kynntar föngum í vikunni en til stendur að takmarka aðgengi fanga að tölvum verulega. Breytingarnar taka gildi 15. janúar næstkomandi. Ástæðurnar eru misnoktun fanga á netaðgengi. Páll Winkel, forstjóri Fangelsisstofnunar er ómyrkur í máli í Fréttablaðinu í morgun, þar sem hann segir nýja tegund glæpamanna komna fram og verið sé að bregðast við því. „Þetta eru menn sem hafa gerst sekir um svo hrottafengin og viðbjóðsleg afbrot að það þarf að tryggja að slíkir einstaklingar séu teknir úr samfélaginu með afgerandi hætti,“ svo vitnað sé í Pál sem segir fanga hafa orðið uppvísa af hótunum á netinu. „Þetta eru fleiri en eitt og fleiri en tvö mál og algjörlega óþolandi. Fangelsin eiga ekki að skila af sér einhverjum holdanautum sem geta barið mann og annan.“ Margrét Frímannsdóttir er fangelsisstjóri á Litla Hrauni. Hvernig lýst henni á þessar nýju reglur?„Í sjálfu sér er þetta kannski ekki mikil breyting önnur en sú að tölvurnar eru teknar út af klefum á kvöldin. Flestir sem eru til dæmis á Litla Hrauni og Sogni eru að stunda nám. Þeir eru með fartölvur. Borðtölvur hafa verið bannaðar um nokkuð langan tíma hér. Þetta er í sjálfu sér, þannig lagað, ekki mikil breyting nema tölvurnar eru teknar út af klefum á kvöldin.“ Hvernig eru viðbrögð fanga við þessum tíðindum? „Þessu hefur verið tekið tiltölulega rólega, menn eru að hugsa sinn gang enda stutt síðan þetta var birt. Menn eru að skoða málin.“Páll Winkel er ómyrkur í máli, talar um nýja tegund glæpamanna sem nota tölvur við glæpi sína. Hvernig horfir það við þér? „Það má vel vera að svo sé gert í auknum mæli. Og auðvitað vitum við dæmi þess. Það er forsaga þess að tölvunotkun er takmörkuð með þessum hætti; menn hafa verið að senda út hótanir. Við erum auðvitað að taka ansi marga netpunga. Tæknin er alltaf dálítið langt á undan okkar. Við höfum verið að taka bæði tölvur og netpunga vegna misnotkunar og þetta eru afleiðingar af því.“ Í Fréttablaðinu heldur Ríkharður Ríkharðsson, formaður Afstöðu – félags fanga, því fram að verið sé að taka af föngum mikilvæga afþreyingu og það muni brjótast út í meira ofbeldi og fíknefnaneyslu innan fangelsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira