Óveður í aðsigi: "Nú eru menn á tánum" Hrund Þórsdóttir skrifar 29. ágúst 2013 18:45 Ekki er búist við eins slæmu veðri og skall á í september í fyrra, en ráðlegt er þó að vera við öllu búin því enn er óvissa í kortunum.
Enn ríkir óvissa um hvar lægðarmiðjan verður síðdegis á morgun og hefur það áhrif á hvar veður verður verst, en full ástæða er fyrir fólk að vera við öllu búið, ekki síst á norðan- og vestanverðu landinu. Að ýmsu er að hyggja þegar óveður er í aðsigi og eins og sjá má á myndum í meðfylgjandi frétt, voru íbúar Sauðárkróks í óða önn við að klára sumarverkin í dag, enda kannski síðustu forvöð. Norðan og vestan til hafa bændur víða flýtt smölun. Óli Þór Árnason veðurfræðingur segir að búast megi við snjókomu og slyddu á fjallvegum á norðvesturlandi. Þá gæti veðrið minnt vel á sig á Snæfellsnesi og á höfuðborgarsvæðinu. „Það verður býsna hvasst, upp að og yfir stormstyrk og hér á höfuðborgarsvæðinu má reikna með vindi upp að 15 til 18 metrum á sekúndu seinnipartinn á morgun. Það er því full ástæða til að fólk hafi varann á sér,“ segir hann. Óli biður fólk að ferðast ekki að nauðsynjalausu og segir að búast megi við miklum vatnavöxtum. Þá ætti að tryggja lausa hluti í görðum og annars staðar. Hann á þó ekki von á eins slæmu veðri og skall á í september í fyrra og olli miklum búsifjum. „Menn áttu ekki von á að veðrið gæti orðið svona vont svona snemma um haustið, en nú eru menn á tánum og taka enga áhættu og ég held að það sé bara skynsamlegt.“ Hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra var fundað stíft í dag og þar verður áfram fylgst með framvindunni í samvinnu við Veðurstofuna. Nokkuð er af ferðamönnum á hálendinu en Hálendisvaktin og aðilar í ferðaþjónustu hafa komið skilaboðum til margra um veðurhorfur. Almenningur getur nálgast upplýsingar á netsíðu Almannavarna og Facebooksíðu þeirra.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Fleiri fréttir Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Sjá meira