Innlent

Berrassaðir pabbar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Pabbar á Stokkseyri kalla ekki allt ömmu sína því þeir hafa berháttað sig á nokkrum myndum, sem prýða nýtt dagatal ungmennafélagsins á staðnum. Ástæðan er sú að þeir eru að safna peningum fyrir nýjum stökkhesti fyrir fimleikadeild ungmennafélags Stokkseyrar. Dagatalið selst eins og heitar lummur.

Á Stokkseyri er rekin öflug fimleikadeild en það sem háir deildinni eru ný og góð fimleikaáhöld. Af þeirri ástæðu brá Ungmennafélag Stokkseyrar á það ráð að hóa saman öllum liðtækum karlmönnum í þorpinu og fá þá til að sitja fyrir á myndum í litlum og jafnvel engum klæðum á dagatali, sem ungmennafélagið var að gefa út fyrir árið 2014.

„Hugmyndin kviknaði bara í eldhúsinu heima. Við vorum að velta því fyrir okkur hvað við gætum gert til að styrkja  þessa krakka og ungmennafélagið. Þá kom þessi hugmynd upp og stuttu seinna var hún komin í framkvæmd. Það tók ótrúlegan stuttan tíma að fá menn til að bera sig fyrir gott málefni.“

Og voru allir til í þetta?

„Já, það var bara eitt orð. Klukkan tíu á kvöldi þá var þetta ákveðið. Hálftíma siðar var búið að fullmanna þetta með myndatökumanni og öllu saman.“

Farið var víða til að mynda en fyrst og fremst var notast við náttúruna við Stokkseyri og nokkrar myndir voru teknar á bátnum Hásteini.

„Og þarna sjást berir rassar og jafnvel eitthvað meira.  Já, fólk sér það kannski betur þegar það rennir yfir dagatalið. Það er fátt sem stoppar þarna. Eins og sést kannski á einhverjum myndunum eru þessi tæki sem þau eru að nota hérna ekki upp á marga fiska og það er engin vanþörf á því að fara að endurnýja þau.“

Íbúar á Stokkseyri segjast vera orðnir mjög þreyttir á fréttaflutningi á svokölluðu Stokkseyramáli og vilja breyta ímynd þorpsins, m.a. með útgáfu dagatalsins.

„Við lentum í því að fá leiðindamál kennt við Stokkseyri, sem okkur finnst frekar ósanngjarnt. Við vildum einmitt líka benda á það að hér er mjög margt jákvætt að gerast, það er mikil samheldni í þessu samfélagi og  gott fólk sem býr hérna.“

Hægt er að kaupa nýja dagatalið í gegnum Facebook síðu Ungmennafélags Stokkseyrar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×