Heila- og taugaskurðlæknir: "Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni má ekki fara" Hrund Þórsdóttir skrifar 23. ágúst 2013 18:30 Hátt í 50 þúsund manns hafa farið fram á að flugvöllurinn verði kyrr, á síðunni lending.is.
Margir vilja hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni af öryggisástæðu og telja ómögulegt að sinna sjúkraflugi öðruvísi. En hvað skyldi vera til í þessu og eru aðrar lausnir mögulegar? Arnar Ástráðsson hefur mikla reynslu af sjúkraflugi vegna starfa sinna sem sérfræðingur í heila- og taugaskurðlækningum í Danmörku og sem héraðslæknir víðs vegar í Noregi. Hann segir að flugvöllur verði að vera nálægt Landspítalanum og kveðst ekki hafa heyrt um neina raunhæfa kosti aðra en Vatnsmýrina. „Keflavíkurflugvöllur er of langt frá Landspítalanum, hann myndi ekki henta til sjúkraflugs því þá er ennþá eftir 45 mínútna landleið,“ segir Arnar. Hann segir þá staðreynd að á Íslandi sé aðeins eitt hátæknisjúkrahús kalla á skilvirkt sjúkraflug. Sumt megi leysa með þyrlum, einkum þegar sækja þurfi fólk á torfarnar slóðir, en þyrlur henti afar illa í öðrum tilfellum. „Sem dæmi má nefna brátt höfuðslys. Þar má flutningstími kannski vera klukkutími en ef hann er kominn upp í tvo til þrjá klukkutíma, eins og þetta tekur nú með þyrlu, er maður held ég farinn að missa ansi marga sjúklinga á þeim tíma,“ segir hann. Í Noregi var búið til módel yfir sjúkraflutninga og þar kemur fram hvar er nóg að hafa sjúkraþyrlu til taks og hvar er nauðsynlegt að hafa bæði sjúkraflugvél og þyrlu, allt eftir fjarlægð á næsta hátæknisjúkrahús. Arnar segir að Íslendingar ættu að ræða við nágranna sína í Noregi því þarlent skipulag gæti hentað vel við íslenskar aðstæður. „Mér finnst umræðan einkennast svolítið af tilfinningum og þekkingarleysi. Það ætti bara að bera allar staðreyndir á borðið og komast að skynsamlegri niðurstöðu fyrir alla landsmenn og ég held að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni megi ekki fara,“ segir Arnar að lokum.
Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Sjá meira