Innlent

Bláa Lónið á lista yfir vinsælustu staðina á Facebook

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bláa Lónið að slá í gegn.
Bláa Lónið að slá í gegn. mynd/samsett
Notendur samskiptamiðla stimpla sig oft á tíðum inn á þá staði sem þeir heimsækja og er hægt að gera það á miðlinum Facebook.

Tölfræðingar Facebook hafa tekið saman hvaða 25 staðir í heiminum það eru sem flestir stimpla sig inn á og er einn þeirra Bláa lónið á Íslandi.

Hér að neðan má sjá lista sem Facebook birtir en fyrst var greint frá þessu á vefsíðunni túristi.is.

Argentína: Puerto Madero, Buenos Aires

Ástralía: Melbourne Cricket Ground, East Melbourne

Bandaríkin: Disneyland, Anaheim, Kalifornía

Brasilía: Parque Ibirapuera, Sao Paulo

Bretland: The 02, London

Egyptaland: Sharm el-Sheikh, South Sinai Governorate

Frakkland: Disneyland Paris

Hong Kong: Hong Kong Disneyland

Ísland: Bláa lónið

Indland: Harmandir Sahib (Gullna hofið)

Ítalía: San Marco torg, Feneyjum

Japan: Disneyland Tókýó

Kanada: Rogers Arena, Vancouver, British Columbia

Mexíkó: Auditorio Nacional, Mexíkó borg

Nígería: Ikeja City Mall, Ikeja, Lagos, Nigeria

Pólland: Temat Rzeka, Varsjá

Rússland: Gorky Park of Culture and Leisure

Singapúr: Marina Bay Sands

Suður Afríka: Victoria & Alfred Waterfront

Suður Kórea: Myungdong Street, Seoul

Spánn: Las Ramblas, Barcelona




Fleiri fréttir

Sjá meira


×