Ný íslensk verksmiðja: Stóreykur verðmæti sjávarafurða Hrund Þórsdóttir skrifar 10. desember 2013 20:00
Lokaprófanir standa nú yfir í Garði á Reykjanesi á verksmiðjunni sem fyrirtækið Héðinn hefur þróað í samstarfi við Matís og sjávarútvegsfyrirtæki. Um er að ræða nýtt framleiðsluferli sem er nógu lítið og hagkvæmt fyrir framleiðslu mjöls og fiskolíu úr annars ónýttum úrgangi. Afköstin eru rúm sjö tonn á sólarhring. „Við erum búnir að vera í nokkur ár að þróa þessa verksmiðju og teljum að því starfi sé lokið og hún sé tilbúin,“ segir Gunnar Pálsson, þróunarstjóri Héðins. Framleiðslan er að öllu leyti sjálfvirk en hægt er að vakta hana hvaðan sem er, í gegnum netið. Aðspurður nefnir Gunnar smæðina sem helsta styrk verksmiðjunnar. „Hún er lítil miðað við það sem þekkist fyrir mjölverksmiðjur. Svo nýtir hún líka allt hráefnið og skilar raunverulega engu frá sér nema vatninu,“ segir hann. Ábatasamt er að nýta hráefni sem annars færi til spillis. 24 þúsund krónur kostar að farga einu tonni af slógi. Heimsmarkaðsverð á mjöli og fiskolíu er um 240 þúsund á tonn og það þarf fimm tonn af slógi til að framleiða eitt tonn af mjöli. Valið snýst því um að borga 120 þúsund fyrir að farga fimm tonnum eða fá 240 þúsund eða meira fyrir afurðirnar sem fást úr þeim. Stefnt er í útrás með verksmiðjuna. „En það er auðvitað heimamarkaður líka sem er góður, að minnsta kosti til prófana. Þótt hann sé ekki mjög stór er það upplagður staður til að þróa svona tækni á og síðan vonumst við til að geta farið með þetta víða,“ segir Gunnar.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira