Fjölskylda í skuldasúpu eftir Eir Jón Júlíus Karlsson skrifar 10. desember 2013 20:00
Stofnuð voru hagsmunasamtök íbúarétthafa á Eir í gær. Talsverð óánægja er meðal íbúa sem fjölmenntu á stofnfundinn. Ekki unnið með hagsmuni íbúa að leiðarljósi segir talsmaður íbúa Eir. Fjölmörg dæmi er um að einstaklingar og fjölskyldur þeirra hafi tapað miklum fjármunum á því að kaupa íbúarétt á Eir. Faðir Gunnars Skagfjörð fór inn á Eir árið 2011 þá níræður að aldri og lést hann fyrr á þessu ári. Sjáfur lagði hann fram fimm milljónir en bróðir Gunnars reiddi fram fimm milljónir til viðbótar til að tryggja föður sínum íbúarétt. Þessar 10 milljónir eru að öllum líkindum glataðar í dag eftir viðskipti við Eir og gæti sú upphæð orðið enn hærri að loknum erfðaskatti. „Við stöndum frammi fyrir því að dánarbúið er gjaldþrota. Þetta skuldabréf sem á að gefa út, við sjáum ekki fram á að það sé pappírsins virði,“ segir Gunnar Skagfjörð. Gunnar tekur það skýrt fram að öll þjónusta sem faðir hans fékk á Eir hafi verið til fyrirmyndar. Fjármál Eir séu hins vegar í dularfullu horfi. „Okkur finnst með ólíkindum að þeir aðilar sem einir eiga að bera þungann í þessu séu íbúarétthafar. Það virðast allir aðrir fá sitt,“ bætir Gunnar við.Skuldabréf til 30 ára Staða íbúarétthafa á Eir er flókin. Upphaflega átti að greiða þeim búseturétt að fullu tilbaka sex mánuðum eftir að íbúi flutti út eða féll frá. Eir er hins vegar nánast gjaldþrota og hefur boðið íbúarétthöfum skuldabréf sem greiða á til 30 ára. Það hugnast fáum. „Við teljum að líkur séu á að íbúarétthafar eigi eignaréttakröfu eða þá veðkröfu,“ segir Sigríður Kristinsdóttir hæstaréttarlögmaður. Hún hefur unnið að málinu með hagsmunasamtökum íbúarétthafa. Gunnar segir nauðsynlegt að opinberir aðilar komi að málinu. „Þetta fólk sem er í rauninni ábyrgt á bakvið tjöldin það þarf að koma fram og sýna sig,“ segir Gunnar Skagfjörð að lokum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot Sjá meira